Lífið

Enginn tími eftir að hún varð mamma

Adriana Lima. MYND/Cover Meida
Adriana Lima. MYND/Cover Meida

Victoria's Secret fyrirsætan Adriana Lima segir að eini tíminn sem hún fær fyrir sjálfa sig eftir að hún varð móðir er þegar hún fer í sturtu.

Adriana, sem á níu mánaða gamla dóttur, Valentinu, með eiginmanni sínum Marko Jarić, tók þá ákvörðun að hvíla sig frá fyrirsætustörfunum og einbeita sér að uppeldinu. Hún er enn að aðlagast nýja lífsstílinum.

Mesta breytingin að hennar sögn er að núna hefur hún nánast engann tíma til að sinna sér.

„Eins og staðan er í dag þá er eini tíminn sem ég hef fyrir mig þegar ég fer í sturtu. Ég hef engan tíma lengur til að hanga yfir sjónvarpinu, fara í bíó eða lesa," sagði hún.

Facebooksíðan okkar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.