Mæðgur deila sögum sínum 23. apríl 2010 05:00 safnar mæðgnasögum Meistaraverkefni Sunnu Dísar Másdóttur fjallar um mæðgur og samband þeirra og ber yfirskriftina Augun mín í augum þínum - Mæðgur tala saman.Fréttablaðið/gva „
Hugmyndin varð til held ég vegna þess að mamma mín hélt upp á fimmtugsafmæli sitt í mars og mér var mikið hugsað til hennar og okkar sambands. Í kjölfarið ákvað ég að verkefnið ætti að fjalla um mæðgur og þeirra magnaða samband,“ segir Sunna Dís Másdóttir um meistaraverkefni sitt í Hagnýtri menningarmiðlun, en verkefnið ber yfirskriftina Augun mín í augum þínum - Mæðgur tala saman. Sunna Dís stendur í ströngu við að safna reynslusögum kvenna af mæðgnasambandinu í eitt stórt fjölskyldualbúm. Verkefnið samanstendur fyrst og fremst af myndbandsviðtölum við mæðgur sem sýnd verða á sýningu sem opnuð verður á mæðradaginn sjálfan þann 9. maí næstkomandi. Auk þess fær hún aðsendar skemmtilegar sögur og minningabrot um sambönd mæðgna. „Ég setti síðuna upp um helgina og sögurnar eru byrjaðar að detta inn. Ég ákvað að taka af skarið og skrifaði sjálf eina sögu um skiptið sem ég og mamma mín þrættum í heila viku um hvort þátíðin af sögninni skíta væri skítti eða skítaði. Taka skal fram að við vorum þá búnar að vera búsettar í Svíþjóð í um ár eða svo og íslenskan aðeins farin að ryðga.“ Aðspurð segir Sunna Dís íslenskar mæðgur vera nokkuð viljugar til að deila sögum sínum með fólki. „Mér þykir þetta lofa góðu og vil auðvitað bara hvetja fleiri til þess að senda inn sögur. Ég er hrikalega spennt að sjá útkomuna enda hefur þetta verkefni verið ótrúlega skemmtilegt og ég oft átt erfitt með að halda niðri í mér hlátrinum á meðan á viðtölunum stóð,“ segir Sunna Dís sem mun að lokum afhenda Miðstöð munnlegrar sögu verkefnið til vörslu. Hafi mæðgur áhuga á að deila ævintýrum sínum er hægt að gera svo með að senda póst á augunmin@gmail.com. Þær birtast svo á síðunni www.maedgur.wordpress.com. - sm
Mest lesið Ein pilla dró Panettiere til dauða Lífið Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum Lífið „Ég ætla að sofa heila eilífð núna“ Tónlist Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Lífið Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Lífið 50+: Svefnherbergisskilnaður Áskorun Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lífið samstarf Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Lífið Fleiri fréttir Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Sjá meira