Lífið

Verður gott að hafa Ragnhildi Steinunni sér við hlið

Guðmundur Gunnarsson mun taka sér stöðu við hlið Ragnhildar Steinunnar þegar söngvakeppni Sjónvarpsins hefur göngu sína og kynna til leiks þau lög sem keppa um að verða framlag Íslands til Eurovision.
Guðmundur Gunnarsson mun taka sér stöðu við hlið Ragnhildar Steinunnar þegar söngvakeppni Sjónvarpsins hefur göngu sína og kynna til leiks þau lög sem keppa um að verða framlag Íslands til Eurovision.
„Þetta er stóra stökkið og stórtíðindi fyrir hið bolvíska samfélag. Allavega hoppaði konan mín hæð sína af kæti,“ segir Guðmundur Gunnarsson sjónvarpsmaður. Hann verður annar af kynnum í söngvakeppni Sjónvarpsins en Ragnhildur Steinunn mun snúa aftur á skjáinn eftir fæðingar­orlof sitt og stýra keppninni af sinni alkunnu snilld með honum.

Guðmundur vakti fyrst athygli fyrir skemmtileg innslög frá landsbyggðinni í fréttatímum Sjónvarpsins en hann hefur að undanförnu verið að gera þættina Á meðan ég man þar sem gamalt efni úr safni Ríkissjónvarpsins er í aðalhlutverki. Guðmundur segist gera sér vel grein fyrir því út í hvaða hákarlalaug hann sé að stökkva, söngvakeppnin sé stór hluti af íslenskri sjónvarpsmenningu enda fylgist rúmlega helmingur þjóðarinnar allajafna með.

„Það koma allir til með að hafa skoðanir á því hvernig maður segir hlutina og ekki síst í hverju maður er í útsendingu,“ segir Guðmundur en eins og frægt er orðið hellti fagstjóri fatahönnunardeildar LHÍ sér yfir þær Evu Maríu og Ragnhildi Steinunni í fyrra og gagnrýndi þær harðlega fyrir klæðaburð sinn í úrslitaþættinum. Guðmundur segist ekki hræðast slíkar skeytasendingar en bætir því við að það verði gott að hafa vana manneskju sér við hlið. Sjónvarpsmaðurinn fer að hlæja þegar hann er spurður hvort hann sé ekki hreinlega næsti „Gísli Einarsson“, sjónvarpsstjarna landsbyggðarinnar, en sá vinsæli sjónvarpsmaður var einmitt einnig kynnir við hlið Ragnhildar Steinunnar fyrir daga Evu Maríu. „Ég er allavega ekki jafn frýnilegur og Eva,“ segir Guðmundur af mikilli hógværð.

Guðmundur á sér sitt uppáhaldslag sem er Lífið er lag með hljómsveitinni Módel. Hann viður­kennir hins vegar að hann sé svona laumuaðdáandi, ólíkt syni sínum sem sé einhver harðasti Eurovision-aðdáandi sem sögur fari af. „Og hann verður örugglega mjög sáttur, ég verð eiginlega að hringja í hann og segja honum frá þessu.“

freyrgigja@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.