Mennt er máttur 16. nóvember 2010 06:00 Hljómsveitin Valdimar er skipuð vel menntuðum tónlistarmönnum. Söngvarinn Valdimar Guðmundsson stendur í miðjunni. fréttablaðið/daníel
Hljómsveitin Valdimar sendi frá sér fyrstu plötu sína á dögunum. Meðlimir poppsveitarinnar Valdimar, sem eru flestir frá Keflavík, eru allir vel menntaðir tónlistarmenn. Þrír eru útskrifaðir tónsmiðir frá Listaháskólanum og einn úr tónlistarskóla FÍH í trommuleik. Sveitin gaf fyrir skömmu út sína fyrstu plötu, Undraland, sem hefur fengið góðar viðtökur. „Stefnan er að reyna að mennta sig eins mikið og á eins breiðu sviði og maður getur,“ segir söngvarinn Valdimar Guðmundsson. Hann lauk tónsmíðanámi sínu við Listaháskólann í vor og er núna í FÍH á djass- og rokkbraut. Hann stefnir einnig á að ljúka námi sínu í djassbásúnuleik þarnæsta vor. „Þetta er gott hljóðfæri í poppið, finnst mér,“ segir hinn 25 ára Valdimar um básúnuna sem hann notar óspart í hljómsveitinni. Hún var stofnuð sumarið 2009 eftir að Valdimar og gítarleikarinn Ásgeir Aðalsteinsson höfðu verið að semja lög í smá tíma. Þrír meðlimir bættust við sveitina, Guðlaugur Már Guðmundsson, Þorvaldur Halldórsson og Kristinn Evertsson, auk þess sem nokkrir gestaspilarar koma við sögu á tónleikum. Valdimar segir að hljómsveitir á borð við Radiohead, Bítlana og Arcade Fire séu sameiginlegir áhrifavaldar hjá bandinu. Hún hlusti samt á fjölbreytta tónlist og áhrifin komi því úr fleiri áttum. Útgáfutónleikar Valdimars vegna nýju plötunnar verða í Fríkirkjunni 27. nóvember. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira