Gerir myndina sem aldrei átti að gera 15. mars 2010 06:00 Lætur slag standa Borgríki er ekta glæpamynd um íslenska og serbneska glæpamenn og baráttu lögreglunnar við þá. Ólafur Jóhannesson hyggst reyna að gera myndina þrátt fyrir niðurskurð kvikmyndasjóðs og yfirlýsingu Útvarpsstjóra. „
Maður er að reyna en það gengur misvel, þetta er líklegt en það á eftir að staðfesta nokkra hluti hér og þar,“ segir Ólafur Jóhannesson kvikmyndagerðarmaður. Það vakti töluverða athygli þegar Ólafur setti á netið stiklu úr hugsanlegri kvikmynd sinni, Borgríki. Stiklan hafði heldur snubbóttan endi því áhorfendur voru kvaddir með þeim orðum að þetta væri myndin sem hefði getað orðið að veruleika ef ekki hefði komið til niðurskurðarins á kvikmyndasjóði og yfirlýsinga Páls Magnússonar, útvarpsstjóra RÚV, um að ekki yrði keypt neitt innlent efni. En nú gæti Borgríki mögulega orðið að veruleika eftir allt saman. „Við ætlum að reyna á næstu vikum og mánuðum. Það eru margir að hjálpast að innan framleiðslunnar, reyna að finna nýjar leiðir til að framleiða kvikmynd,“ segir Ólafur. Með helstu hlutverkin í myndinni fara þau Ágústa Eva Erlendsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson en Ólafur segir hana sýna undirheimana frá ólíkum sjónarhornum, þetta sé alvöru, harðsoðin glæpamynd. „Sagan verður sögð frá sjónarhóli íslenskra glæpamanna, serbneskra krimma og svo löggunnar og fleiri,“ útskýrir Ólafur. Leikstjórinn segir gulrótina fyrir leikarana vera þá að með þátttöku sinni fái þeir kærkomið frí frá öllu krepputalinu. „Maður gefst hreinlega bara upp á því að fylgjast með stöðugum Icesave-fréttum og upp-komst-um-þennan-fréttum. Þetta gæti bara verið hálfgerð meðferð frá þessu öllu, tækifæri til að útiloka þetta allt,“ segir Ólafur. - fgg
Mest lesið Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Frægir fundu ástina 2025 Lífið Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning „Við erum öll dauð hvort sem er“ Lífið Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Menning Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Lífið Fleiri fréttir „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Sjá meira