Innlent

Óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir Keflavíkurhrottum

Héraðsdómur Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness.

Gæsluvarðhald rann út í dag yfir tveimur mönnum sem eru grunaðir um að hafa ráðist á 64 ára gamlan mann, eiginkonu hans og dóttur við heimili þeirra í Reykjanesbæ þann 3. maí síðastliðinn.

Mennirnir, sem eru um tvítugt, voru leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness í dag og krafðist lögreglustjórinn á Suðurnesjum þess að þeir yrðu úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhaldi í allt að 4 vikur á grundvelli almannahagsmuna.

Dómari tók sér sólarhringsfrest til að taka afstöðu til kröfunnar.

Líkamsárásin var alvarleg og hlaut maðurinn beinbrot auk annarra áverka en konurnar hlutu minni áverka. Mennirnir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í kjölfar atburðarins. Fram hefur komið að árásin á fólkið hafi verið handrukkunaraðgerðir gegn heimilismanni sem ekki var heima þegar atvikið átti sér stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×