Hægt að bæta samfélagið thordis@frettabladid.is skrifar 1. júlí 2010 13:44 Gunnar Hersveinn rithöfundur mun í nýrri bók fjalla um gildin tólf sem fulltrúar þjóðfundarins völdu í Laugardalshöll í fyrrahaust. Fréttablaðið/Arnþór „
Bókin er skrifuð fyrir almenning á mannamáli um þau tólf gildi sem 1.500 manns á þjóðfundinum 2009 völdu til að efla með sjálfum sér eða til að breyta samfélaginu til betri vegar," segir Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur, sem situr nú við skriftir á bók sem Skálholtsútgáfan gefur út í haust um gildin tólf. „Ég upplifði stemninguna sem á þjóðfundinum ríkti og það var ný reynsla og spennandi að leitað væri að visku fjöldans. Því er óvenjulegt að skrifa bók sem búið er að velja efnið í, en mitt hlutverk er að finna nýja nálgun á þessi gildi og tengja inn í framtíðina til endurreisnar samfélagsins," segir Gunnar Hersveinn og bætir við að bókin muni nýtast bæði einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum. „Ég veit að fyrirtæki og stofnanir fóru af stað eftir þjóðfundinn og vildu innleiða gildin í starf sitt og því verður þetta handbók til þess líka, en samt sem áður opin því ekkert er nokkurn tímann endanlegt og eilífðarverkefni að vinna með þessi gildi. Því eiga lesendur að skapa um þau umræðu og bæta einhverju við," segir Gunnar Hersveinn. Gildin sem nutu mest fylgis á þjóðfundinum voru heiðarleiki, jafnrétti, virðing, réttlæti, kærleikur, ábyrgð, frelsi, sjálfbærni og lýðræði. Einnig fjölskyldan, jöfnuður og traust. „Þessi gildi töldu þjóðfundarfulltrúar að hefði skort hingað til og heiðarleiki valinn mikilvægastur. Svona hópur af gildum er svo alltaf valinn tímabundið; eitthvað sem samfélagið þarfnast næstu árin, og mitt markmið að finna eitthvað nýtt í kringum þau í staðinn fyrir að telja upp það sem áður hefur verið sagt," segir Gunnar Hersveinn sem hefur langa reynslu af skrifum bóka um gildi og hefur áður skrifað bækurnar Gæfuspor - gildin í lífinu og Orðspor - gildin í samfélaginu. „Samt er vandasamt að skrifa bók sem á líka að heppnast, en ég tel mig hafa ágætan grunn og hef reynt að æfa mig í að skrifa á skiljanlegu máli. Ég nota ákveðna aðferð til að nálgast þetta, tengi hugtökin saman og reyni að finna mælikvarða og hindranir svo að gildin virki sem best." Hann segir ekki hafa komið á óvart að heiðarleiki hafi lent efstur á blaði. „Ég hef skoðað vel hvaða gildi hafa verið vinsælust í gegnum tíðina og þar hefur heiðarleiki alltaf verið verið mjög ofarlega á baugi. En við segjum oft heiðarleiki þótt við kunnum hvorki né vitum hvernig við eigum að innleiða hann, rækta með okkur eða efla hann. Bókin er því ætluð til hjálpar þeim sem vilja stíga skrefið lengra. Þá mun ég einnig fjalla um önnur gildi sem mér finnst vanta, eins og nægjusemi, því gildi þjóðfundarins voru algjör grunnhugtök þótt ánægjulegt hafi verið að sjá sjálfbærni og jafnrétti þeirra á meðal," segir Gunnar Hersveinn, sannfærður um að saman getum við gert Ísland að betri stað til að lifa á. „Það er vel hægt að bæta samfélagið og markmið með bókinni er að vera verkfæri þeirra sem hafa áhuga á einmitt því. Fyrir aðeins fimm árum þótti hallærislegt að vilja gera eitthvað til að bæta samfélagið en ég vona að sá tími sé liðinn. Þá snerist allt um að bæta sjálfan sig og ná árangri í lífinu fyrir sig, en kenningin í bókinni segir að enginn verði fullþroska maður fyrr en hann stígur út úr innsta hring og vill gera eitthvað fyrir aðra."
Mest lesið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Lífið Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Lífið Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Lífið Fleiri fréttir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Sjá meira