Lífið

Hlakkar til jólanna

Liv Tyler segist hlakka engu minna til jólanna en sex ára gamall sonur sinn.
nordicphotos/getty
Liv Tyler segist hlakka engu minna til jólanna en sex ára gamall sonur sinn. nordicphotos/getty
Leikkonan Liv Tyler segir í viðtali við tímaritið People að hún hafi ekki gaman af því að fara á stefnumót. Leikkonan hefur verið á lausu frá því hún skildi við eiginmann sinn árið 2008.

„Ég hef í raun aldrei farið á stefnumót áður. Ég er ekki vel að mér í þeim efnum,“ sagði leikkonan, sem nýtur þess í stað að eyða tíma með sex ára gömlum syni sínum.

Tyler segist engu minna spennt fyrir jólunum en sonur hennar. „Ég er svolítið kjánaleg. Ég vakna ennþá klukkan sex að morgni jóladags og hleyp að jólatrénu. Alveg eins og barn.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.