Dyah vill vera dagskrárstjóri 13. mars 2010 05:00 Dyah sækir um starf dagskrárstjóra Sjónvarpsins ásamt 36 öðrum. fréttablaðið/valli „
Ég hef nýtt menntun mína á vinnumarkaðinum, en ég hef alltaf haft áhuga á því,“ segir hin 29 ára gamla Dyah Anggraini, sem er ein af 37 umsækjendum um starf dagskrárstjóra Sjónvarpsins. Dyah er frá Indónesíu, en flutti til Íslands árið 2008 og er gift íslenskum manni. Hún er vel menntuð í fjölmiðlafræðum og keppir við margar kanónur um starfið, en Egill Helgason, Maríanna Friðjónsdóttir, Felix Bergsson og Sigurjón Kjartansson eru á meðal umsækjenda. „Ég hef alltaf haft áhuga á fjölmiðlum og er með masterspróf í blaðamennsku frá háskólanum í Westminster á Englandi,“ segir Dyah. Hún var að stíga út úr tíma í Háskóla Íslands þegar Fréttablaðið náði í hana, en þar er hún í MBA-námi í viðskiptafræði. Sérsvið hennar á Englandi var fjölmiðlun með áherslu á sjónvarp og útvarp. „Ég lærði allt í sambandi við dagskrárgerð, frá því að þáttur er skrifaður þangað til hann er sendur út.“ Dyah sækir íslenskunámskeið í HÍ og hefur náð fínum tökum á tungunni, þó hún geri lítið úr því sjálf. „Mér finnst tungumálið erfitt, þannig að ég læri hægt,“ segir hún og hlær. Dyah er búin að vera í atvinnuleit síðastliðið ár og segir leitina ganga hægt. Hún segist vissulega hafa getið valið betri tímasetningu en árið 2008 til að koma til Íslands í atvinnuleit. „Ég vann í banka og það er ekki hjálplegt að vera með það á ferilskránni,“ segir hún og hlær. „En ég elska Ísland, það er svo fallegt land. Ég gefst ekki upp á því strax.“ - afb
Mest lesið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið „Fyrri kona mannsins míns er með Parkinson, ekki ég“ Áskorun Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Allt í einu orðin mamman sem missti barnið sitt Lífið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Fleiri fréttir Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein