Skrifar þriðju bókina um Bubba 6. ágúst 2010 07:45 Árni Árnason er að vinna að því að skrifa nýja samtalsbók við Bubba Morthens sem á að koma út fyrir næstu jól. Fréttablaðið/ „
Vinnuferlið við bókina er nýfarið af stað og við Bubbi búnir að hittast nokkrum sinnum,“ segir Árni Árnason markaðsfræðingur en hann er með samtalsbók við tónlistarmanninn Bubba Morthens í bígerð og stefnir á að demba henni í næsta jólabókaflóð. Þetta er í fyrsta sinn sem Árni sest í rithöfundarstólinn en hann vinnur sem markaðsfræðingur og kennari á daginn og bókin því eins konar áhugamál hjá honum. Bókin verður gefin út í tilefni 30 ára starfsafmælis Bubba sem er á árinu en á ekki að vera ævisaga tónlistarmannsins. Nú þegar hafa tvær bækur komið út um ævi Bubba Morthens, Bubbi eftir Silju Aðalsteinsdóttur og Ballaðan um Bubba eftir Jón Atla Jónasson, svo það er ekki úr vegi að spyrja Árna hvort það komi einhverjar nýjar upplýsingar fram um tónlistarmanninn fræga í þessari bók? „Þetta á að vera svona bók sem er byggð á samtölum milli mín og Bubba um allt milli himins og jarðar. Ekkert endilega um hans ævi heldur meira um hans skoðanir á lífinu, tilverunni og málefnum líðandi stundar. Bubbi er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum,“ segir Árni og bætir við að hann búist við að margar fróðlegar og áhugaverðar upplýsingar komi fram og bókin verði því ekki bara fyrir hörðustu aðdáendur tónlistarmannsins. „Það hafa verið gerðar svipaðar bækur áður, eins og bókin um Gunnar Dal Að elska er að lifa og svo kom út sams konar bók um írska söngvarann Bono fyrir nokkrum árum,“ segir Árni og viðurkennir að hann sjálfur sé mikill aðdáandi Bubba Morthens. „Nú í sumar sitjum við bara og spjöllum með diktafóninn á borðinu um heima og geima og svo þegar líða tekur á haustið sest ég niður og tek samtölin saman,“ segir Árni sem ber Bubba vel söguna og segir hann skemmtilegan í spjalli. - áp
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira