Innlent

Flokksritari í miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins til Íslands

He Guoqiang, flokksritari í stjórnmálanefnd miðstjórnar kínverska kommúnistaflokksins, sækir Ísland heim 9. og 10. júní ásamt sendinefnd.

He Guoqiang mun eiga fund með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og Össuri Skarphéðinssyni, utanríkisráðherra. Þá mun hann kynna sér orkunýtingu í Svartsengi og á Hellisheiði samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×