Sean Penn fær styrk frá Bill Clinton 11. október 2010 11:00 Sean Penn er ein þeirra stórstjarna sem hefur lagt sitt á vogarskálarnar við að koma Haítí til hjálpar.
Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, og stofnun hans hafa ákveðið að styrkja góðgerðarsamtök bandaríska leikarans Sean Penn um 500 þúsund dala, sem samsvarar 55 milljónum íslenskra króna. Penn hefur verið ötull talsmaður mannúðarmála en það er Haítí sem á hug hans allan. Íbúar eyjarinnar í Karíbahafinu glíma við mikla erfiðleika eftir jarðskjálfta sem reið yfir í janúar á þessu ári. Stórstjörnur hafa reynt að leggja sitt af mörkum til að koma þeim til hjálpar en Sean Penn hefur staðið þar í fremstu víglínu. Penn hefur sjálfur dvalist langdvölum á eyjunni og aðstoðað við hjálparstarfið sjálfur. Það vakti hins vegar mestu athyglina þegar hann gagnrýndi forsetaframboð rapparans Wyclef Jean harðlega og sagði hann hafa látið sig hverfa þegar ástandið var sem verst. Jean svaraði fyrir sig á tónleikum í New York og sagði að það væri ekkert skrýtið að Penn hefði ekki orðið var við sig á Haítí, hann hefði verið of upptekinn við kókaínneyslu. Í yfirlýsingu frá hjálparstofnun Penns kemur fram að umræddur styrkur sé ómetanlegur og hann hjálpi starfsmönnunum að halda áfram uppbyggingarstarfinu. Clinton hefur þegar styrkt starf Penns með ráðgjafarþjónustu.
Mest lesið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Fleiri fréttir Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Sjá meira