Alþjóðlegar stjörnur á Inspired by Iceland-tónleikum undir Eyjafjöllum 25. júní 2010 11:00 Damien Rice í Ráðhúsinu í nóvember, þar sem hann stóð fyrir sérstakri náttúruvæðingu. Hann kemur aftur hingað til lands og heldur tónleika í næstu viku.
Damien Rice er á leiðinni til landsins enn á ný. Hann kemur fram á tónleikunum á vegum Inspired by Iceland-verkefnisins í Hamragörðum undir Eyjafjöllum 1. júlí. Damien ætlaði í fyrstu aðeins að koma fram á tónleikunum á myndbandi, eins og nokkrir listamenn, en ákvað á síðustu stundu að slá til og mæta í eigin persónu. Rice kom síðast til landsins seint á síðasta ári þegar hann tók upp tónleika í hljóðverinu Sundlaugin ásamt því að bregða á leik með leikskólabörnum í Reykjavík. Hafdís Huld hefur einnig bæst í hópinn sem kemur fram á tónleikunum, en fyrir voru listamenn á borð við Lay Low, Diktu og Amiinu.Argentíska þokkadísin Mia Maestro spilar með Pétri Hallgrímssyni.Þá kemur gítarleikarinn Pétur Hallgrímsson fram undir nafninu Pondus. Pétur tók nýverið upp dúett með Shirley Manson úr hljómsveitinni Garbage sem naut mikilla vinsælda á seinni hluta tíunda áratugarins. Hljómsveitin kom til landsins árið 1999 og hélt tónleika á þaki Faxaskála. Hann hefur nú verið rifinn, en kaldhæðni örlaganna hagar því þannig að tónlistarhúsið Harpa rís á rústunum. Shirley er ekki væntanleg til landsins til að syngja lagið með Pétri, en í stað hennar mætir argentínska þokkadísin Mia Maestro. Mia þessi er stórvinkona Sölmu Hayek, sem er, að öðrum konum ólöstuðum, útlits- og líkamlegt þrekvirki. Mia hefur komið víða við og leikið í Alias-þáttunum sem Íslendingar þekkja af RÚV ásamt því hafa leikið í fjölmörgum kvikmyndum og talað inn á þátt af Family Guy.Mial er einnig gallharður stuðningsmaður argentínska landsliðsins og miðað við ástríðu hennar fyrir fótboltanum skulum við vona að Maradona og félagar í Argentínu verði komnir í átta liða úrslit þegar hún mætir til landsins. - afb
Mest lesið Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Laufey á landinu Lífið Fleiri fréttir Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Sjá meira