Lífið

Calvin Klein vill íslenskan strák í auglýsingaherferð

Ingibjörg Finnbogadóttir og Tinna Aðalbjörnsdóttir reka saman Elite-umboðsskrifstofuna á Íslandi. Þær leita að nýrri karlfyrirsætu fyrir Calvin Klein. fréttablaðið/valli
Ingibjörg Finnbogadóttir og Tinna Aðalbjörnsdóttir reka saman Elite-umboðsskrifstofuna á Íslandi. Þær leita að nýrri karlfyrirsætu fyrir Calvin Klein. fréttablaðið/valli
„Við erum að leita að flottum strákum fyrir næstu tískusýningu hönnuðarins Calvins Klein í New York. Sá sem verður valinn kemst á samning hjá okkur og á svo einnig möguleika á því að komast á samning hjá hönnuðinum sjálfum og verða andlit næstu auglýsingaherferðar fyrirtækisins. Þannig að við erum að leita að næstu karlfyrirsætu Calvins Klein,“ segir Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Elite-umboðsskrifstofunnar á Íslandi.

Umboðsskrifstofan fékk verkefnið beint í gegnum tengiliði sína í New York og að sögn Ingibjargar er Calvin Klein að leita að nýju skandinavísku andliti fyrir næstu sýningu sína. „Við erum eina Elite-umboðsskrifstofan á Norðurlöndunum sem fengum þetta verkefni þannig að þetta er bæði mjög spennandi verkefni fyrir okkur og mikill heiður, enda erum við nýbúnar að opna skrifstofuna.“ Að sögn Ingibjargar hefur Calvin Klein ekki áður leitað sérstaklega að íslenskum karlfyrirsætum og bætir við að þetta sé einstakt tækifæri fyrir alla þá stráka sem hafa áhuga á tískubransanum og vilja skoða heiminn í leiðinni.

Auglýsingar Calvins Klein hafa ávallt vakið mikla athygli og hafa margar þekktar stjörnur setið fyrir í auglýsingaherferðum hönnuðarins, má þar helst nefna leikarann Mark Wahlberg, fótboltakappann Freddie Ljungberg, fyrirsætuna Kate Moss og leikkonuna Evu Mendez.

Verið er að leita að strákum á aldrinum 16 til 30 ára og þurfa þeir að vera yfir 180 sentimetrar að hæð. Prufur fara fram á morgun milli klukkan 16.00 og 18.00 við Klapparstíg 25-27.

sara@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.