Taka við berstrípuðu leikhúsi 21. september 2010 06:00 Björk Jakobsdóttir verður ein þeirra sem kemur að rekstri leikhússins. Með henni verða Gunnar Helgason, Gunnar Björn Guðmundsson, Lárus Vilhjálmsson og Ágústa Skúladóttir. Fréttablaðið/Stefán
Nýverið var greint frá því að Hafnarfjarðarbær hefði samið við Gaflaraleikhúsið um rekstur leikhúss að Strandgötu 50 í Hafnarfirði sem áður hýsti Hafnarfjarðarleikhúsið. Björk Jakobsdóttir, Gunnar Helgason, Lárus Vilhjálmsson, Gunnar Björn Guðmundsson og Ágústa Skúladóttir koma að Gaflaraleikhúsinu en reiknað er með því að nýja leikhúsið verði opnað um mánaðamótin október-nóvember. Björk og Gunnar áttu sinn þátt í því að koma Hafnarfjarðarleikhúsinu Hermóði og Háðvör á laggirnar fyrir sextán árum og þau fá svo sannarlega að byrja með Gaflaraleikhúsið frá grunni. „Nei, það eru engin ljós, engir bekkir, engir stólar fyrir áhorfendur, ekki neitt. Ætli við rukkum nokkuð inn á opnunina heldur biðjum fólk bara um að koma með stóla og borð. Þetta verður svona svipað og þegar fólk er að safna í stell,“ segir Björk. Hópurinn fær lykla að húsinu afhenta í dag en í gær var unnið hörðum höndum að því að fjarlægja allt úr húsinu. Björk segir þau einfaldlega ætla að laga starfsemi hússins að umhverfinu. En það séu stórar og miklar hugmyndir í bígerð. „Já, það er barnaleikrit eftir Gunnar Helgason, söngleikur, ævintýraleikrit, uppistand og revíuprógramm, við höfum alveg endalaust mikið af hugmyndum og hlökkum alveg óskaplega mikið til að byrja,“ segir Björk. - fgg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Sjá meira