Frægur hakkari í Bláa lóninu í dag 24. september 2010 06:00 Erla Bjarney Árnadóttir er formaður Félags íslenskra tölvuleikjaframleiðenda. Hún býst við skemmtilegri ráðstefnu í Bláa lóninu. Mynd/Valli
Félag íslenskra tölvuleikjaframleiðenda heldur upp á ársafmæli sitt í Bláa lóninu í dag. Þar verður haldin ráðstefna þar sem lykilfyrirlesararnir eru þeir Pablos Holman og Jason Della Rocca. Holman er frægur hakkari og sérfræðingur í öryggismálum, sem hefur einnig unnið við smíði geimflauga. Rocca er eftirsóttur fyrirlesari eins og Holman og hefur stýrt Alþjóðasamtökum tölvuleikjaframleiðenda í níu ár. „Það er bæði heiður og ánægja að fá þá Pablos og Jason í heimsókn. Það verður lærdómsríkt að hlusta á fyrirlestra þeirra og annarra sem þarna koma fram,“ segir Erla Bjarney Árnadóttir, formaður Félags íslenskra tölvuleikjaframleiðenda. Hún er að vonum spennt fyrir ráðstefnunni. „Þetta er í fyrsta sinn sem við fáum tækifæri til að hittast öll í þessum geira hér á landi og velta fyrir okkur framtíðinni, bæði út frá sjónarmiðum okkar Íslendinga sem og því sem er að gerast úti í heimi,“ segir hún. Sex fyrirtæki eru meðlimir í Félagi íslenskra tölvuleikjaframleiðenda og varlega áætlað starfa rúmlega 450 manns í þessum geira hér á landi. Flestir starfa hjá CCP, eða um 280 manns. Hjá Gogogic starfa um 40 manns og hjá Betware starfa um 75 manns. „Þetta er orðinn nokkuð fjölbreyttur iðnaður sem hefur alla burði til að vaxa frekar. Sem dæmi má nefna að miðað við hina margfrægu höfðatölu jafngildir þetta um 400 þúsund störfum í Bandaríkjunum og um 90 þúsund störfum í Þýskalandi,“ segir Erla. „Hér á landi hefur verið stöðugur vöxtur síðustu tíu ár, þó svo að ákveðin sprenging hafi orðið upp úr 2008.“ - fb
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira