Sýnir í þriggja milljarða íbúð 26. september 2010 12:00 Myndlistarmaðurinn Hjörtur Hjartarson við eitt verka sinna. Sjö málverka hans verða til sölu í rándýrri þakíbúð í New York. Mynd/GVA
Hjörtur Hjartarson sýnir olíumálverk sín í rándýrri þakíbúð í New York. Hann segir íslenskar náttúrumyndir sínar passa ágætlega inn í lúxusíbúðir. „Verðmiðinn er 24 milljónir dollara eða einhverjir þrír milljarðar,“ segir myndlistarmaðurinn Hjörtur Hjartarson um þakíbúð í New York þar sem sjö olíumálverk hans verða til sölu á næstunni. Íbúðin er til sölu og er við götuna Broom Street sem er vinsæl á meðal auðugra Bandaríkjamanna. Hún er um sjö hundruð fermetrar og lofthæðin er um fimm metrar. „Hún er með útsýni yfir alla Manhattan. Þetta er ein flottasta íbúð sem ég hef séð. Hún er með heitum potti og japönskum garði. Svo er bara lið fyrir utan með aleiguna í innkaupakörfu. Það verða ekki meiri andstæður en þetta,“ segir Hjörtur. Hann hélt einkasýningu í New York í október í fyrra sem fékk mjög góð viðbrögð og seldust allar myndirnar upp. Síðan þá hafa fleiri myndir hans verið til sölu víðar í New York. „Það er innanhússhönnuður sem er að taka myndirnar og sýna þær í betri íbúðum. Það eru nokkrir amerískir myndlistarmenn sem hún valdi og síðan er ég eini Íslendingurinn,“ útskýrir Hjörtur. Fólkið sem kaupir þessar íbúðir kaupir yfirleitt alla innanstokksmuni líka, þar á meðal málverkin, og fær innanhússhönnuði til að innrétta fyrir sig. „Þetta fólk nennir ekki að innrétta sjálft. Það vill fá allan pakkann. Þetta er ameríski mátinn við sölu á lúxusíbúðum.“ Hjörtur hefur haldið fjórtán einkasýningar hérlendis. Hann segist hafa dottið inn í þennan sýningapakka í New York fyrir tveimur og hálfu ári. „Ég var að sýna í Start Art á Laugaveginum. Þá duttu þessar konur inn sem voru að koma hingað og velja einhverja listamenn. Það kom allt í einu rigningardemba og þær hoppuðu þarna inn til að fá skjól. Þetta var skemmtileg tilviljun.“ Auk sýningarinnar í þakíbúðinni heldur Hjörtur samsýningu ásamt fjórum Bandaríkjamönnum sem verður haldin í lífsstílsbúð Cristina Dos Santos í Tribeca-hverfinu í New York. Þar hafa myndir Hjartar áður verið til sýnis og til dæmis birst í tímariti Mörthu Stewart. Hjörtur er virkilega ánægður með viðtökurnar sem myndir hans hafa fengið í New York. „Þetta eru bara íslenskir litir og íslensk náttúra sem ég er að vinna með. Síðan tek ég mikið af ljósmyndum og vinn út frá þeim. Ég hef farið inn í nokkrar íbúðir þar sem fólkið býr sem hefur keypt af mér. Þarna er voða mikil steinsteypa og konseptið hjá mér passar ágætlega inn í þetta. Ég er að gefa þeim glugga úr náttúrunni og þess vegna gengur þetta upp.“ Aðspurður segir hann þessi góðu viðbrögð New York-búa hafa komið sér á óvart. „Gjörsamlega. Ég bjóst ekki við neinu, þannig séð.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira