Dóri DNA flytur til Þýskalands 25. september 2010 06:00 Dóri DNA hlakkar mikið til að flytja til Þýskalands og er að eigin sögn altalandi á þýsku. Fréttablaðið/anton
Rapparinn og uppistandarinn Dóri DNA segist þurfa á tilbreytingu að halda og flytur út eftir helgi. „Ég flyt út á þriðjudaginn og hlakka mikið til,“ segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, en hann er flytja til Þýskalands í skiptinám. Dóri nemur fræði og framkvæmd við Listaháskóla Íslands en hann hyggst vera úti í hálft ár. „Ég er mikill heimalningur í mér svo þetta er í fyrsta sinn sem ég flyt út fyrir landsteinana – en finn að ég þarf á því að halda,“ segir Dóri og bætir við að íslenskur samtími sé svo sorglegur að hann hlakki bara til að sleppa við að lesa blöðin á morgnana og gráta yfir örlögum landsins síns. „Þetta er eitthvað sem maður verður að prufa en skólinn er í litlum bæ fyrir utan Frankfurt og við erum tveir frá Íslandi að fara í saman,“ segir Dóri og viðurkennir að það eigi eftir að slá aðeins á heimþrána. Þegar Fréttablaðið náði af Dóra tali var hann staddur í New York þar sem hann hefur verið að vinna að viðtölum fyrir heimildarmyndina HKL ásamt móður sinni, Guðnýju Halldórsdóttur. „Þetta er búið mjög skemmtileg ferð þar sem við erum búin að lenda í vandræðum fyrir utan Hvíta húsið, skoða frelsisstyttuna og fara um upptökustaði The Wire-þáttanna,“ segir Dóri en hann kemur heim í dag í tæka tíð fyrir kveðjupartýið sitt sem haldið verður á Prikinu í kvöld. „Ég vonast til að sem flestir sjái sér fært að skála við mig í kvöld. Allir velkomnir,“ segir Dóri glaður í bragði að lokum. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Dauðinn er stríðinn og óútreiknanlegur Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Lífið Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Lífið Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Lífið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Lífið Stefnir með sjö fjölskyldum aftur á Unglingalandsmótið Lífið samstarf Myndaveisla: Götubitinn í Hljómskálagarðinum Lífið samstarf Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Fleiri fréttir Dauðinn er stríðinn og óútreiknanlegur Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Sjá meira