Lífið

Steina í sláturhúsi

Videólistakonan Steina tekur þátt í 700.is hátíðinni á Egilisstöðum í mars.
Videólistakonan Steina tekur þátt í 700.is hátíðinni á Egilisstöðum í mars.
Alþjóðlega videó- og tilraunakvikmyndahátíðin 700 IS Hreindýraland verður haldin í fimmta sinn á Egilsstöðum 20.-27. mars. Að þessu sinni er metþátttaka – innsend verk voru 642 frá 49 löndum.

Af þeim voru 76 verk valin til sýningar. Þar að auki frumsýnir videólistakonan Steina nýtt videóverk fyrir sex skjái í Frystiklefanum í Sláturhúsinu. Víðs vegar um Sláturhúsið verða svo hin 76 verkin sýnd þessa viku, en einnig verður kínverskt tilraunabíó í gangi og listamenn og forstöðumenn samstarfshátíða verða með listamannaspjall.

700 IS er komið í Evrópusamstarf með þremur videóhátíðum, Moves í Bretlandi, Intermodem í Ungverjalandi og Frame Research í Portúgal. Á hverri hátíð er valið sitt hvort verðlaunaverkið úr innsendum evrópskum verkum og svo verða Þessi fjögur verk sýnd á öllum hátíðunum frá maí 2010 til apríl 2011 og höfundar þeirra fá sérstök verðlaun og vegsauka. Nánar má lesa um hátíðina á www.700.is.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.