Hinsegin kaupfélag opnað 17. júlí 2010 11:00 „
Þetta er hluti af fjáröflun okkar þar sem hátíðin kostar sitt. Þetta er einnig kjörinn vettvangur fyrir fólk til að verða sér úti um það sem þarf fyrir hátíðina," segir Þorvaldur Kristinsson, forseti Hinsegin daga. Í dag verður opnað Kaupfélag Hinsegin daga sem er verslun með varning, aðgöngumiða og VIP kort ásamt fleiri nauðsynjum fyrir hátíðina. Kaupfélagið er í versluninni IÐU við Lækjargötu og verður opið alla daga fram að hátíð. Þetta er fastur liður í fjáröflun Hinsegin daga og er verslunin jafnframt það fyrsta sem fólk verður vart við þegar hátíð fer að nálgast. „Þarna getur fólk fundið regnbogabönd, regnbogafána, regnbogafjaðrir og í raun nánast allt regnboga- sem það vill. Á hverju ári er einnig gerður bolur hátíðarinnar og í ár er það Davíð Terrazaz sem hannar hann. Bolurinn verður til sölu í Kaupfélaginu en fylgir þó frítt með ef keypt er VIP kort," segir Þorvaldur. Að hátíðinni kemur fjöldinn allur af sjálfboðaliðum og má nefna að um tíu sjálfboðaliðar sjá um Kaupfélag Hinsegin daga en fá aðstoð 50 sjálfboðaliða sem selja varning á hátíðardaginn í göngunni sjálfri. „Undirbúningurinn gengur mjög vel og allt er samkvæmt áætlun, enda erum við með fólk í margra ára æfingu þar sem þetta er í 12. skipti sem hátíðin er haldin. Það er öllum velkomið að vera með í göngunni. Það eina sem fólk þarf að gera er að tilkynna sig til göngustjóra með upplýsingar um atriðið sitt," segir Þorvaldur, spenntur fyrir hátíðinni í ár.
Mest lesið Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Fólk spyrji um veganisma af forvitni frekar en til að vera með leiðindi Lífið Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Lífið Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Lífið „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Tónlist Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Lífið Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Lífið Fleiri fréttir Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Sjá meira