Mátti ekki fljúga til Íslands 3. september 2010 07:45 Hljómsveitin er eitt heitasta bandið á Iceland Airwaves-hátíðinni sem verður haldin í október.
Everything Everything er eitt heitasta bandið sem spilar á Iceland Airwaves-hátíðinni í október. Söngvarinn Jonathan Higgs fékk aldrei að fara til Íslands þegar hann var lítill. Everything Everything spilar á Iceland Airwaves-hátíðinni um miðjan október. Hljómsveitin þykir ein sú efnilegasta í Bretlandi um þessar mundir og komst hún á lista breska ríkisútvarpssins, BBC, yfir fimmtán efnilegustu sveitir ársins 2010. Everything Everything spilar léttleikandi og litríka popptónlist undir áhrifum níunda áratugarins og kom fyrsta plata hennar, Man Alive, út 30. ágúst. Hún hefur fengið fína dóma, þar á meðal fjórar stjörnur í tímaritunum Q og Mojo. „Við hófum upptökur í febrúar en höfðum verið að vinna í lögunum í tvö ár, þannig að þetta hefur tekið sinn tíma,“ segir söngvarinn og gítarleikarinn Jonathan Higgs. Meðlimir sveitarinnar koma frá Newcastle og Kent á Englandi en í Manchester varð hún að veruleika. Higgs útskýrir: „Ég var í skóla með Mike trommara og síðan hitti ég Jeremy bassaleikara í háskóla í Manchester. Síðan hittum við Alex sem var í annari hljómsveit en hún hætti og á svipuðum tíma hætti gítarleikarinn okkar þannig að hann gekk til liðs við okkur,“ segir hann. „Við áttum einhver demó í pokahorninu sem við vorum ánægðir með og ákváðum að læra að spila þau saman. Það gekk vel því hinir eru frekar góðir hljóðfæraleikarar en ég er aftur á móti lélegur.“ Ekki skemmdi það fyrir að bakgrunnur strákanna var svipaður í tónlistinni. „Við lærðum allir á klassísk hljóðfæri í æsku og í framhaldinu lærðum við á rokkhljóðfæri. Við hlustum líka á svipaða tónlist,“ segir hann og nefnir Radiohead, Bítlana og bandaríska R&B-tónlist, þar á meðal Destiny"s Child. Jonathan hlakkar mikið til að spila á Íslandi í haust. „Við höfum aldrei farið þangað. Foreldrar mínir fóru oft þangað þegar ég var að alast upp. Bróðir minn og systir fóru líka en mér var aldrei leyft að fara því ég var ekki nógu stór. Ég man að þau heilluðust af hverunum og eldfjöllunum. Ísland hlýtur að vera ótrúlegt land.“ Söngvarinn er vel kunnugur íslenskri tónlist og nefnir Björk og Sigur Rós til sögunnar, sem kemur alls ekki á óvart miðað við vinsældir þeirra erlendis. „Við erum miklir aðdáendur Bjarkar og þegar ég var í háskóla hlustaði ég mikið á Sigur Rós. Kærastan mín var mesti Sigur Rósar-aðdáandi í öllum heiminum,“ segir hann og hlær. Jonathan lofar flottum tónleikum á Iceland Airwaves. „Tónleikarnir okkar eru frekar kraftmiklir og það lifnar alltaf mikið yfir lögunum okkar. Ef fólk fer á tónleikana okkar án þess að hafa hlustað á plötuna gætu þeir orðið ruglingslegir. Ég mæli með því að fólk hlusti fyrst á plötuna og komi síðan og horfi á okkur, þá nær það okkur miklu betur.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Lífið Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Lífið Ein heitasta söngkona landsins á lausu Lífið „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Lífið Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Lífið Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Lífið Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Lífið Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Lífið Gaf eistum kærastans gælunafn Lífið Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Lífið Fleiri fréttir Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Ein heitasta söngkona landsins á lausu Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Gaf eistum kærastans gælunafn „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Ástin sveif yfir ítölskum vötnum Cosby Show-stjarna látin Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísafirði Heimsfræg lesbía á leið til landsins Stökk fjörutíu sinnum úr flugvél í Dubai Stjörnulífið: „Hann er pabbi minn“ „Ég vakna á hverjum degi og þrái ekkert meira en að fá hann aftur“ Ákváðu að vera um kyrrt á Englandi þegar Trump náði kjöri Millie Bobby Brown í hóp Íslandsvina Stór saga í litlum umbúðum: „Barnæskan mín er greypt í minnið“ Segir af sér eftir að Coldplay kom óvart upp um framhjáhaldið Trylltist þegar hún varð fyrir árás byssumanna í Ríó Krakkatían: Barbie, forseti og flugstöð Charli xcx gifti sig „Nú eruð þið farin að draga mig aftur inn í pólitíska umræðu“ Óskandi að það væru fleiri börn með Downs á Íslandi Fréttatía vikunnar: Eldgos, heimsókn Ursulu og frægur gítar Grátbað um að fá að deyja en fagnar nú öllum framförum Stjórn fyrirtækisins hefur formlega rannsókn Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Sjá meira