Spaugstofan er beittari 19. mars 2010 06:00 Ritgerð um Spaugstofugrín Nanna Guðmundsdóttir er að skrifa BA-ritgerð um Spaugstofuna og grín hennar á krepputímum. Nanna segir Spaugstofuna hafa orðið beittari og grófari á þessu tímabili. Karl Ágúst Úlfsson er upp með sér yfir því að þeir rati inn í slík verkefni.Fréttablaðið/GVA
Nanna Guðmundsdóttir er að skrifa BA-ritgerð í þjóðfræði um Spaugstofuna og nálgun hennar á kreppuna. Hún segir þáttinn hafa orðið grófari og fengið meiri brodd eftir að fjármálakerfið fór á hliðina. „Mér hefur alltaf fundist þeir skemmtilegir og er, eins og margir Íslendingar, alin upp við Spaugstofuna,“ segir Nanna Guðmundsdóttir, nemi í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Hún er að skrifa BA-ritgerð um Spaugstofuna og nálgun hennar á kreppuna og hefur því horft á alla þætti fjórmenninganna veturinn 2008 til 2009. Nanna flytur fyrirlestur um þessa rannsókn sína á Húmorsþingi Þjóðfræðistofu sem haldið verður á morgun á Café Riis á Hólmavík. Nanna segist upphaflega hafa ætlað að skrifa ritgerð um Spaugstofuna í heild sinni en síðan áttað sig á því að það væri kannski fullmikið af hinu góða að rannsaka tuttugu ára efni í þaula. „Kreppunálgunin var ekki fyrsta val en þetta er þægileg afmörkun,“ segir Nanna en rannsóknin hefur leitt í ljós nokkrar forvitnilegar niðurstöður. „Þeir hafa til að mynda orðið aðeins grófari, það er miklu meiri broddur í þáttunum núna heldur en var fyrir hrun,“ segir Nanna og bætir því að í samtölum sínum við Karl Ágúst Úlfsson Spaugstofumann hafi komið fram að þeir taki hlutverk sitt sem ádeiluhöfundar mjög alvarlega. „Það sést líka á viðbrögðum fólks við Spaugstofunni að þessi ákveðna tegund af ádeilu er mjög mikilvæg og ein kona sem ég ræddi við sagði þá hafa verið hálfgerða sáluhjálp fyrir sig,“ útskýrir Nanna. Nanna viðurkennir að Spaugstofan hafi ekki verið upp á sitt besta í góðærinu og þeir geti verið misfyndnir. Og þeir viðurkenni það líka sjálfir. „Þeir voru reyndar byrjaðir að gagnrýna ástandið áður en allt hrundi og Elton John er til að mynda táknmynd fyrir allt bruðlið,“ segir Nanna og bætir því við að eftir bankagjaldþrotin hafi Spaugstofan eiginlega hætt að vera hópur góðlegra grínara og einbeitt sér að því að vera ádeiluhöfundar. Karl Ágúst Úlfsson sagðist í samtali við Fréttablaðið vera nokkuð sammála greiningu Nönnu og var eiginlega upp með sér að þeir væru nú orðnir svo mikill hluti af menningarsögunni að þeir rötuðu inn í slík verkefni. „Við erum að beita húmor í ádeiluskyni, hún hefur vissulega orðið beittari og tekið meira pláss í þáttunum, en við erum að skoða hinar grátbroslegu hliðar á raunveruleikanum.“ freyrgigjafrettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira