Lífið

Cadillac-gjörningur bannaður

Halldór ætlaði að láta hífa Cadillac-bifreiðir í krönum yfir tónlistar- og ráðstefnuhúsinu.
fréttablaðið/vilhelm
Halldór ætlaði að láta hífa Cadillac-bifreiðir í krönum yfir tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. fréttablaðið/vilhelm

„Þetta er alveg glatað því þetta hefði verið flott,“ segir Halldór Bragason, skipuleggjandi Blúshátíðar í Reykjavík.

Til að kynna hátíðina, sem hefst 27. mars, var Halldór búinn að útvega Cadillac-bifreiðar fá Cruiser-klúbbnum sem átti að hífa upp í krönum yfir nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsinu. Tónlistarmaðurinn Davíð Þór Jónsson átti að sjá um harmonikkuundirleik og átti gjörningurinn að heita Flying Cadillac Over the House of Blues, eða Fljúgandi Cadillac yfir húsi blússins. Portus sem annast byggingu hússins ákvað að leyfa þetta ekki. „Þetta var alveg útilokað mál en við gefumst ekki upp,“ segir Halldór, sem mun reyna að útfæra hugmyndina á annan hátt.

Hann segir að það hefði komið vel út að sjá Cadillac-bílana, sem tengjast blúsnum órjúfanlegum böndum, hanga yfir hinni ókláruðu byggingu. „Það fannst öllum þetta rosafín hugmynd. Þetta hefði verið svona blússinfónía.“

Fjöldi tónlistarmanna kemur fram á Blúshátíð í Reykjavík, þar á meðal Super Chikan og munnhörpuleikarinn Billy Branch. Báðir eru þeir tilnefndir til bandarísku blúsverðlaunanna sem verða afhent 6. maí. Miðasala á Blúshátíð er í fullum gangi á Midi.is. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.