Menn orðsins saman á svið 25. október 2010 11:30 Erpur Eyvindarson og Bjartmar Guðlaugsson eru góðir vinir en koma í fyrsta skipti saman fram á tónleikum næstkomandi þriðjudag. Fréttablaðið/anton „
Ég er mikill aðdáandi Bjartmars og tel okkur eiga meira sameiginlegt en marga grunar,“ segir Erpur Eyvindarson rappari en hann og tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson ætla að leiða saman hesta sína næstkomandi þriðjudag og halda tónleika á Café Rosenberg. „Ég tel okkur Bjartmar báða vera menn orðsins, þó að við séum með mismunandi undirspil. Ekki hræddir við að segja okkar skoðanir, sem eru kannski sterkari en hjá fólki flestu,“ segir Erpur en hann hefur löngum verið í svokölluðum Bjartmarsklúbbi með ekki minni mönnum en Helga Seljan, Andra Frey Viðarssyni og flestum meðlimum Mínussveitarinnar. „Við erum miklir aðdáendur Bjartmars og teljum hann vera mann fólksins á tímum þegar allt er til sölu. Hann tók ekki þátt í þessu góðærishjóli og beið þangað til öllu því linnti fyrir austan,“ segir Erpur og fer ekki leynt með aðdáun sína á tónlistarmanninum góðkunna. Sú aðdáun er gagnkvæm ef marka má Bjartmar, sem segir Erp vera greindan dreng og góðan vin. „Við erum mjög líkir og okkur finnst báðum gaman að glíma við orð. Svo skiljum við hvor annan vel,“ segir Bjartmar en hann lofar góðu kvöldi á þriðjudaginn vegna þess að þeir eigi eftir að skemmta sér svo vel saman á sviðinu. Erpur segir þá félagana vera að æfa saman atriði en vill ekki gefa upp nánari upplýsingar um það. „Það kemur í ljós, ég hvet bara alla til að mæta. Bjartmar ætlar að mæta með kertaljós og reykelsi og ég kem með derhúfuna. Þetta verður notaleg stund.“- áp
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Kynlíf á ekki að vera vont Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Jói Fel málar með puttunum Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu