Ásdís Rán mætir í saumaklúbba landsins 8. nóvember 2010 08:00 Sérfræðingur Ásdís býðst til að heimsækja vinkonuhópa og saumaklúbba landsins og gefa persónulegar ráðleggingar varðandi útlit og heilsu. „
Ég næ yfirleitt ekki að svara öllum þeim fyrirspurnum sem ég fæ í pósthólfið mitt og ákvað því að bjóða upp á svona þjónustu til að gefa konum kost á að hitta mig persónulega og spyrja mig ráða,“ segir Ásdís Rán fyrirsæta en hún kemur til landsins í lok nóvember og býður sig fram til að heimsækja saumaklúbba og vinkonuhópa landsins og gefa góð ráð um allt milli himins og jarðar. „Þetta er fræðsla, kennsla og ráðgjöf fyrir skvísur á öllum aldri. Ég ætla að vera með sýnikennslu og gefa mér tíma til að sinna hverri og einni eftir bestu getu,“ segir Ásdís og bætir við að hún fái hinar ýmsu spurningar inn á borð til sín. „Vinsælustu fyrirspurnirnar sem ég fæ eru hvernig ég laga á mér hárið, mataræðið, rassæfingarnar og hvernig ég held mér í formi. Ég tel mig vera sérfræðing í þessu öllu,“ segir Ásdís Rán, en þjónustan kostar milli 7-10 þúsund krónur á mann. „Það er bara svipað verð og ráðgjafar og einkaþjálfarar eru að taka en ég stoppa í nokkra klukkutíma og gef góð ráð. Þetta verður svona kósý kvöld með góðu spjalli,“ segir Ásdís, sem er nýflutt til München í Þýskalandi þar sem eiginmaður hennar Garðar Gunnlaugsson spilar knattspyrnu. „Mér líst ágætlega á þetta. Við búum í notalegu fjölskylduhverfi og krakkarnir eru mjög ánægðir hérna,“ segir Ásdís. Hægt er að senda henni pantanir og fyrirspurnir varðandi ráðgjafakvöld Ásdísar á netfangið asdis@model.is.- áp
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira