Ólafur seldur á 37 milljónir 22. nóvember 2010 00:01 Ólafur Elíasson er ákaflega verðmætur en fyrsta, mikilvæga verkið hans, Quadruple Spiral Projection, var selt fyrir 37 milljónir í Svíþjóð á dögunum. Fréttablaðið/Valli
Quadruple Spiral Projection, sem listfræðingar telja vera fyrsta mikilvæga verkið eftir íslenska listamanninn Ólaf Elíasson, var slegið hæstbjóðanda hjá norræna uppboðshaldaranum Bukowski í Stokkhólmi á miðvikudagskvöld. Verkið fór á 37 milljónir íslenskra eða rúmar 2,2 sænskra en samkvæmt uppboðsskránni var jafnvel búist við því að verkið yrði selt á þrjár milljónir sænskra. Quadruple Spiral Projection er þriggja metra hár skúlptúr sem leikur sér með ljós- og skuggaáhrif. Það var hannað árið 2004 en eins og flestum ætti að vera kunnugt um er Ólafur nú í fremstu röð samtímalistamanna. Verkið er nú í einkaeigu en fastlega má reikna með því að verðgildi þess eigi eftir að hækka haldi ferill Ólafs áfram að vera jafn glæsilegur. Framkvæmdastjóri Bukowski, Mikael Storåkers, segir verkið vera fallegt og einfalt og mikla hönnun og henta vel þeim sem geti haft verk eftir Ólaf Elíasson inni hjá sér. „Ólafur er einn mikilvægasti listamaður heims og það er því mikill heiður fyrir þetta uppboðsfyrirtæki að fá að bjóða upp svona mikilvægt verk eftir hann hérna í Svíþjóð." Ýmis listaverk og hönnunarvörur voru boðin upp þetta kvöld og mátti meðal annars sjá hluti eftir Arne Jakobsen og Alvar Aalto.- fgg
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira