Vilt þú ókeypis ferð til London 18. nóvember 2010 15:51 Kings Of Leon.
Símtölunum rignir inn á útvarpsstöðinni X-977 þessa dagana, enda hófst þar á mánudaginn Kings Of Leon-leikur þar sem verðlaunin eru lúxusferð til London á tónleika með sveitinni. Í hvert skipti sem lag með Kings Of Leon er spilað á X-inu þá fer tíundi hlustandinn sem hringir inn í pott sem dregið verður úr 15. desember. „Við spilum svona tíu lög með þeim á dag og í hvert skipti eru línurnar glóandi. Við erum ennþá að svara í símann tveimur lögum seinna. Það hefur svosem aldrei verið símtalahallæri hérna en þetta er glæsilegt," segir Ómar Eyþórsson, dagskrárgerðarmaður á X-977. Það er svosem ekki skrýtið enda er leikurinn í samstarfi með Tuborg, Ring og Icelandair og verðlaunapakkinn flottur. Innifalið í honum er flug og gisting fyrir tvo, miðar og ferð á tónleikana og partý í O2-tónleikahöllinni. Svo til að undirstrika pakkann hefst ferðin á limmóferð í Leifsstöð. Ómar á X-inu liggur í símanum þessa dagana. „Það er gaman að geta boðið upp á alvöru pakka. Ekki bara prump í vatnsglasi. Og þessi leikur verður sá fyrsti af mörgum. Það eru fimm eða sex svona ferðir framundan á tónleika víðs vegar um heiminn," segir Ómar á X-977. Leyfilegt er að ná nafninu sínu oftar en einu sinni í pottinn. „Algjörlega. Miði er möguleiki. Við drögum bara 15. desember og það verður ekkert fiff," segir Ómar. Fyrir þá sem heyra lag með Kings Of Leon á X-inu er síðan rétt að minna á það að síminn þar er 517 0977.
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira