Lífið

Leynd hvílir yfir Skaupinu: Álftanes tekið fyrir

Gunnar Björn hyggst vernda innihald Skaupsins með kjafti og klóm en upplýsir þó að gæðaleikarinn Hjalti Rögnvaldsson muni leika í því.
Gunnar Björn hyggst vernda innihald Skaupsins með kjafti og klóm en upplýsir þó að gæðaleikarinn Hjalti Rögnvaldsson muni leika í því.

„Við byrjuðum á mánudaginn og erum hérna úti á Álftanesi," segir Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri Áramótaskaups Sjónvarpsins. Tökur á þessum vinsælasta sjónvarpslið ársins hófust í vikunni og það var hið skuldum hlaðna sveitarfélag Álftanes sem fékk þann vafasama heiður að vera heimsótt fyrst en það hefur verið töluvert í fréttum vegna bágrar fjárhagsstöðu. Gunnar vildi hins vegar ekkert gefa upp um hvar þeir væru nákvæmlega staddir enda hvílir mikil leynd yfir gerð Skaupsins líkt og í fyrra.

Leikstjórinn vildi ekki einu sinni gefa upp hvort hann væri búinn að ráða leikara í hlutverk borgarstjórans Jóns Gnarr en það liggur beint við að persóna hans verði fyrirferðarmikil í Skaupinu vegna sigurs Besta flokksins í höfuðborginni. „Það er ekkert öruggt í þessum bransa," segir Gunnar og vísar spurningunni frá sér.

Reiknað er með tökur standi yfir út nóvember og svo verður opinn gluggi í desember ef eitthvað stórvægilegt gerist. Sami hópur stendur að Skaupinu í ár og gerði það svo glæsilega í fyrra en það eru þau Ari Eldjárn, Anna Svava Knútsdótir, Halldór E. Högurður, Sævar Sigurgeirsson, Ottó Geir Borg og Gunnar Björn sjálfur sem skrifa handritið. Gunnar fékkst til að upplýsa að Gunnar Hansson, Hjalti Rögnvaldsson og Anna Svava myndu leika í Skaupinu en sagðist svo ætla að vera þögull sem gröfin. „Áramótaskaupið er svo merkilegt, fólk vill láta koma sér á óvart en vill líka aðeins fá smjörþefinn af því."- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.