Geimverur til Hollywood 18. nóvember 2010 22:00
Geimverur og náin tengsl við annars heims verur hafa alltaf verið Hollywood hugleikin. Það hefur síður en svo dregið úr þeim áhuga því á útgáfuáætlun stóru framleiðslufyrirtækjanna eru hátt í fimmtán myndir um geimverur af öllum stærðum og gerðum. Um helgina verður frumsýnd kvikmyndin Skyline sem fjallar um innrás geimvera á jörðina. Eins og svona kvikmynda er siður úir og grúir allt af tæknibrellum og mannkynið reynir að lifa af í vonlausri baráttu við ógnarstór geimför og hrikalegan tortímingarmátt þeirra. Skyline, miðað við dómana sem hún hefur fengið í erlendu pressunni, ryður ekki brautina í geimverukvikmyndum en imdb.com gefur henni aðeins fimm af tíu mögulegum. Vefsíðan Cinemasoldier.com veltir upp þeirri spurningu af hverju geimverur og innrás þeirra séu svona ofarlega í huga Hollywood. Og kemst að þeirri einföldu niðurstöðu að allir vilja græða á góðu gengi kvikmynda á borð við Avatar, Cloverfield og síðast en ekki síst District 9. Greinarhöfundurinn bendir hins vegar á þá staðreynd að þessar þrjár myndir buðu upp á eitthvað nýtt, Avatar í tækni en hinar tvær með söguþræði sínum og nálgun. Og þetta er auðvitað lang þægilegasta og einfaldasta útskýringin; Hollywood hugsi bara um peninga og hvernig megi græða. Og nú séu það geimverurnar. Á þessu getur hins vegar verið önnur hlið. Eftir seinna stríð hófu bandarísk stjórnvöld miskunnarlausan áróður um hættuna af kommúnismanum og sá áróður skilaði sér rakleiðis út í kvikmyndir, kommarnir urðu geimverur sem vildu eyða hinu frjálsa samfélagi Vesturlanda og þessi ótti lifði lengi og var framlengdur með kjarnorkuvánni og taugaveikluninni við slíka styrjöld. Alltaf voru geimverurnar notaðar til að sýna fram á hið ókunna og skelfilega sem þó Bandaríkjamönnum tókst að sigra með kænsku sinni – og vopnum. Bandaríkin hafa sennilega aldrei verið jafn hrædd þjóð og um þessar mundir. Múslimi má varla leysa vind án þess að allar hryðjuverkavarnir séu ræstar enda rekur heimsveldið umdeildan stríðsrekstur í Afganistan og Írak og styður við bakið á stjórnvöldum í Ísrael. Og því er engin furða að bandarískir kvikmyndagerðarmenn skuli mótast af þessum hugsunarhætti; þessari eilífu hræðslu við hryðjuverk í stærstu borgum og hugsanlegri útrýmingu bandarískra gilda. Það var engin tilviljun að Independence Day skyldi slá í gegn 1996; á friðartímunum sem þá höfðu ríkt var engin ástæða til að óttast hið ókunna og fólk hafði ekki séð sæmilegan geimverutrylli í dágóðan tíma, meira að segja óvinir Bandaríkjanna tóku þá þátt í að smita geimveruskipin af kvefi Jeffs Goldblum. Allt stefnir í að 2010 og 2011, jafnvel 2012 verði geimveruár. Og kvikmyndahúsin muni fyllast af alls kyns hetjum sem berjast gegn yfirráðum þeirra og tortímingarmætti þeirra. Nema í kvikmyndinni Paul; þar sýna bresku grínistarnir Simon Pegg og Nick Frost fram á að það er hægt að vingast við þessa verur og jafnvel hafa nokkuð gaman af þeim. freyrgigja@frettabladid.is Hér fyrir ofan má sjá stiklu úr Skyline en á Vísir Sjónvarp er hægt að sjá fleiri skemmtilegar bíóstiklur undir flokknum Bíó.
Mest lesið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Lífið samstarf Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bíó og sjónvarp Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat Sjá meira