Stormsker ritar ævisögu Völu Grand 22. desember 2010 07:00 Völu Sverrir Stormsker ritar ævisögu Völu Grand og hefst vinnan á nýju ári. Sverrir segir ungt fólk oft hafa lifað meira og merkilegra lífi en þeir sem eldri eru. „
Það er oft með fólk sem er kannski ekki nema 25 ára, það hefur stundum lifað meira og merkilegra lífi heldur en þeir sem eru níræðir,“ segir tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker. Sverrir hyggst rita ævisögu Völu Grand, en hún hefur verið mikið á milli tannanna á fólki fyrir og eftir að hún gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð á árinu. Sverrir og Vala hittust í útvarpsviðtali á Útvarpi Sögu á dögunum þar sem hugmyndin varð til. „Okkur datt þetta snjallræði í hug að ég myndi rita ævisögu hennar – líklegast í viðtalsformi,“ segir hann. Og ertu búinn að hitta hana með upptökutækið? „Nei, ekki síðan. Það er búinn að vera svo ægilegur snúningur á manni. Þeysingur.“ Þannig að vinnan hefst á nýju ári? „Já, nákvæmlega. Ætli ég hitti hana ekki í janúar eða febrúar. Ég held að það væri sniðugast.“ Þrátt fyrir að Vala sé aðeins rúmlega tvítug telur Sverrir að hún hafi frá ýmsu að segja. „Það getur vel verið að hún hafi frá miklu meira að segja en afdönkuð gamalmenni – með fullri virðingu fyrir afdönkuðum gamalmennum,“ segir hann og tekur sem dæmi að fáir hafi gengist undir aðgerðina sem hún gekkst undir. Spurður hvort einhverjir útgefendur séu komnir í spilið segir Sverrir að hann sé ekki byrjaður að kanna áhuga þeirra, en bætir við að sú vinna hefjist á nýju ári.- afb
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira