Ólafur Darri með Balta í Hollywood 24. desember 2010 08:15 Ólafur Darri leikur lítið hlutverk í Hollywood-kvikmyndinni Contraband sem Baltasar Kormákur leikstýrir.Fréttablaðið/Valli
Ólafur Darri Ólafsson hefur hreppt lítið hlutverk í Hollywood-kvikmyndinni Contraband sem Baltasar Kormákur leikstýrir. Meðal mótleikara Ólafs í myndinni eru þau Kate Beckinsale og Mark Wahlberg en myndin er endurgerð á hinni íslensku Reykjavik-Rotterdam. „Ég hlakka alveg rosalega mikið til, ég er búinn að tala við Þjóðleikhúsið og Tinna Gunnlaugs var meira en lítið reiðubúin til að greiða götu mína. Það er ekki amalegt þegar maður hefur svona mikið af velviljuðu fólki í kringum sig,“ segir hann. Ólafur mun leika vélstjóra í myndinni og fær nokkrar línur. Baltasar sjálfur vísar því hins vegar á bug að Ólafur hafi fengið hlutverkið í gegnum einhvern klíkuskap. „Hann fór bara með þetta í gegnum umboðsmanninn sinn í London og mætti síðan í prufur og þeir úti í Bandaríkjunum voru það hrifnir af honum að þeir létu hann hafa hlutverkið,“ segir Baltasar. Ólafur Darri er hins vegar ekki alveg jafn viss og telur nokkuð víst að ef Balti hefði ekki setið í leikstjórastólnum hefði hlutverkið fallið einhverjum öðrum í skaut. Ólafur segir það alltaf hafa verið draum hjá sér að prófa Hollywood, og sjá hvernig svona stór framleiðsla fari fram. „Það verður ekkert verra að fá að upplifa þetta með Baltasar. Ég var einmitt að rifja þetta upp um daginn að við erum búnir að gera saman fjögur leikrit og þetta verður fimmta bíómyndin okkar,“ segir Ólafur sem fer út um miðjan janúar. - fgg
Mest lesið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið Fleiri fréttir „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Sjá meira