Bandarískar lesbíur gifta sig í Reykjavík í ágúst 20. júlí 2010 14:00 Edie og Jen segja að röð tilviljana hafi gert það að verkum að þær ákváðu að láta verða að gifta sig á Íslandi. „
Það var röð tilviljana sem gerði það að verkum að þetta er að fara að gerast. Við vonuðumst til að geta gift okkur hér í New York, en í desember var tillaga um að leyfa giftingu samkynhneigðra felld sem var mjög leiðinlegt,“ segir hin bandaríska Edie Hoffmann. Hoffmann og unnusta hennar, Jen Stewart, hafa verið saman í fimm ár og búa í New York. Hoffmann er listakona en Jen lögfræðingur. Alþingi samþykkti í júní ný hjúskaparlög sem gilda eins fyrir alla; sam- og gagnkynhneigða. Hoffmann og Stewart ákvaðu því að koma til landsins gifta sig á Hinsegin Dögum í Reykjavík fyrstu helgina í ágúst. „Þegar við kynntum okkur landið áttuðum við okkur á því að Hinsegin Dagar í Reykjavík væru á sama tíma og við vorum í fríi. Þegar við héldum áfram að kynna okkur landið voru lög um giftingu samkynhneigðra staðfest. Þetta var hætt að líta út eins og tilviljun og við ákváðum því að láta verða af þessu,“ segir Hoffmann. Ísland kom strax til greina sem áfangastaður þegar parið skipulagði sumarfríið sitt. Stewart hafði alltaf haft áhuga á að koma til landsins og Hoffmann finnst gaman að ferðast og var því til að skoða það nánar. Eftir að hafa kynnt sér landið fannst þeim það fallegt, töfrandi og með endalausa möguleika til að gera þá hluti sem þær hafa áhuga á. Þar má nefna fjallgöngur, ljósmyndun og tónlist, en parið heldur mikið upp á Björk og Sigur Rós. Parið kemur hingað til lands 6. ágúst og fyrst á dagskrá er Bláa Lónið. Seinna sama dag verða þær gefnar saman og hefja líf sitt sem hjón í Reykjavík. Þær ætla svo að keyra um Snæfellsnesið og fá fegurð þess beint í æð áður en þær keyra um suðurlandið í átt að Vík og til baka. „Það er jákvætt að eyða ferðapeningunum sínum í landi þar sem maður er velkominn og nýju lögin hvöttu okkur til að koma til Íslands,“ bætir Hoffmann við að lokum. linda@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira