Opið hús á Korpúlfsstöðum 30. apríl 2010 09:00 Opið hús á Korpúlfsstöðum á morgun þar sem tugir listamanna hafa vinnustofur. Hér má sjá leirlistakonur að störfum. Fréttablaðið / Hörður
Á morgun verður vorhátíð í Sjónlistamiðstöðinni á Korpúlfsstöðum þar sem tugir myndlistarmanna hafa haft aðstöðu um árabil í skjóli Reykjavíkurborgar. Það eru fjörutíu myndlistarmenn sem hafa þar aðsetur og reka Sjónlistamiðstöðina. Í tilefni af vorhátíðinni verður opnuð sérstök sýning á verkum þeirra á hlöðuloftinu og á morgun verður þar í boði dagskrá með fjölbreyttu efni auk þess sem vinnustofur listamanna í húsinu verða opnar upp á gátt. Hópurinn sem hefur aðstöðu á Korpúlfsstöðum er settur saman af listamönnum úr ólíkum geirum myndlegrar sköpunar; málun, grafík, leirlist, textíl, fatahönnun og landslagsarkitektúr eiga þar sína fulltrúa. Vinnustofurnar eru leigðar út þrjú ár í senn, en Samband íslenskra myndlistarmanna, SÍM, leigir aðstöðuna af Reykjavíkurborg og annast endurleigu til áhugasamra, en ásókn í aðstöðuna er mikil og ræður sérskipuð valnefnd hverjir fá aðstöðu þar. Þá eru þar gestavinnustofur og íbúð fyrir erlenda listamenn. Hópurinn á Korpúlfsstöðum er vanur því að fá gesti til að skoða hvað er þar á seyði. Fyrsta laugardag hvers mánaðar er þar opið hús og tvisvar á ári er efnt til samsýningar á hlöðuloftinu sem þau segja stærsta og óvenjulegasta sýningarsal á landinu. Að þessu sinni er yfirskrift sýningarinnar Birta. Á morgun mun hópur salsa-dansara mæta á svæðið, Vox Feminae kemur fram undir stjórn Margrétar Pálmadóttur og Einar Már Guðmundsson les upp. Veitingasala er starfandi í húsinu á morgun og leikur örugglega mörgum forvitni á hvernig innanstokks er í þessu forna setri Thors Jensen sem var ein stærsta tilraun til að koma á fót stórbúi hér á landi í þann tíma þegar flest býli, jafnvel forn höfuðból, voru smábýli í húsakosti. Hópurinn stendur fyrir vefsíðu þar sem skoða má hvaða listamenn eru nú um stundir með staðfestu í gamla húsinu á Korpúlfsstöðum: www.korpart.is. Allir eru velkomnir á morgun til hátíðarhaldanna. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Fleiri fréttir Gagnrýni á John ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Sjá meira