Þórólfur vill nýja Þjóðhagsstofnun 30. apríl 2010 04:30 Hagstjórn hér á árunum fyrir hrun einkenndist af flokkssjónarmiðum, segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði. Fréttablaðið/Stefán
Eitt það helsta sem við höfum lært af bankahruninu er nauðsyn einnar stofnunar sem metur áhrif hins opinbera á hagkerfið. Það réttlætir endurstofnun Þjóðhagsstofnunar. Þetta er mat Þórólfs Matthíassonar, prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands. Hann gagnrýndi hagstjórnarleg mistök ríkisstjórna og eftirlitsaðila á árunum 2003 til 2007 harðlega á hádegisfundi í Háskóla Íslands í vikunni þar sem fjallað var um lærdóminn af bankahruninu í kjölfar útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Í erindi sínu fór Þórólfur yfir ýmislegt upp úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem sagt er hafa aflaga farið, allt frá einkavæðingarferli bankanna á árabilinu 1998 til 2003. Þórólfur taldi til ýmis hagstjórnarleg mistök stjórnvalda máli sínu til stuðnings, svo sem byggingu Kárahnjúkavirkjunar, hækkun á lánshlutfalli Íbúðalánasjóðs, sem dró úr aðhaldi og olli háþrýstingi í hagkerfinu. Á svipuðum tíma sleppti Seðlabankinn krónunni á flot og innleiddi mistæk verðbólgumarkmið. „Í [þeim] felst gengisfestuloforð. Þetta hygg ég að menn hafi ekki gert sér grein fyrir,“ sagði hann og bætti við að þetta hafi vakið athygli spákaupmanna, sem sáu tækifæri í krónuviðskiptum. Þórólfur sagði aðgerðir stjórnvalda bera vott um að vera kosningaloforð og stjórnmálaflokkarnir því látið flokkssjónarmið ganga framar hagsmunum landsins. Þetta, ásamt aðgerðum stjórnvalda, hafi valdið efnahagslegu ójafnvægi sem leiddi til hrunsins. „Við höfum áður búið við ónýta peningastefnu og höfðum gert áratugum saman. En skaðinn er miklu stærri en nokkurn tíma áður og enginn hafði fulla yfirsýn yfir afleiðingarnar af ónýtri peningamálastefnu, flokkshollri fjármálastefnu og Pótemkín-tjöldum bankanna,“ sagði Þórólfur. Slíkt gæti Þjóðhagsstofnun gert þótt tilmæli um endurreisn hennar séu ekki nefnd í skýrslu rannsóknarnefndarinnar, að hans sögn. jonab@frettabladid.is
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Sjá meira