Bólusetja á við eyrnabólgu 30. apríl 2010 06:00
Draga mun verulega úr slæmri eyrnubólga barna, lungnabólgu, blóðsýkingu og heiluhimnubólgu af völdu pneumókokkabaktería þegar bólusetning í ungbörnum gegn bakteríunum hefst. Stefnt er á að það verði gert á næsta ári. Sjúkdómar af völdum bakteríanna leggjast aðallega þungt á börn og eldra fólk, að sögn Ásgeirs Haraldssonar yfirlæknis á barnaspítala Hringsins. Hann segir að gera megi ráð fyrir að það dragi úr sjúkdómum í öðrum aldurshópum um leið og farið verður að bólusetja ungbörnin. Börn séu aðalsmitberar sjúkdóma. Árlega deyja um sex manns af völdum sýkinganna, um fimm úr hópi eldra fólks. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra sagði í samtali við Fréttablaðið að verið sé að leita leiða til að leggja fjármagn til bólusetninganna á næsta ári. Áætlað er að bólusetningin kosti á bilinu 120 til 140 milljónir króna árlega en ráðherra gerir ráð fyrir að verja 100 milljónum til þeirra á næsta ári enda hefjist bólusetning líklega ekki 1. janúar. „Ávinningurinn af bólusetningunni er hins vegar margfaldur. Fyrir utan að færri veikjast verður minna álag á heilbrigðiskerfið og minna vinnutap svo dæmi séu tekin," segir ráðherra. Að því er fram kemur í greinargerð með þingsályktunartillögu um bólusetninguna eru eyrnabólgur og vandamál þeim tengd eitt algengasta heilsuvandamál barna á Íslandi. Þar kemur einnig fram að talið er að allt að 95 prósent barna fái eyrnabólgu að minnsta kosti einu sinni fyrir sex ára aldur. Bent er á að eyrnabólga sé algengasta orsök sýklalyfjaávísana hér á landi og skýrir yfir helming allrar sýklalyfjanotkunar barna. Hin mikla notkun sýklalyfja hjá börnum eigi einna stærstan þátt í sýklalyfjaónæmi á Íslandi sem sé mikið hér miðað við nágrannalöndin. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um bólusetninguna, bendir á að reynsla nágrannalandanna sem mörg hafi hafið þessa bólusetningu sé mjög góð. Siv er bjartsýn á að þingið samþykki tillöguna sem vísað var til heilbrigðisnefndar eftir fyrstu umræðu á þriðjudag. Hún segir einkar ánægjulegt hve ráðherra hafi tekið vel í tillöguna. sigridur@frettabladid.is
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Fleiri fréttir Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvað er sólmyrkvi? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Sjá meira