Lífið

Símahrekkur á FM957 vekur hörð viðbrögð

Útvarpsþátturinn Svali og félagar er harðlega gagnrýndur fyrir símahrekk. Svali sjálfur segir þau hafa útvarpað mun grófari hrekkjum. Þessi hafi fyrst og fremst verið vandræðalegur. Fréttablaðið/Valli
Útvarpsþátturinn Svali og félagar er harðlega gagnrýndur fyrir símahrekk. Svali sjálfur segir þau hafa útvarpað mun grófari hrekkjum. Þessi hafi fyrst og fremst verið vandræðalegur. Fréttablaðið/Valli

„Það var komið samþykki fyrir hrekknum og við vorum náttúrlega líka búin að taka út nöfnin til að koma í veg fyrir að fólkið þekktist," segir Svali, útvarpsmaður á FM957. Hann tekur jafnframt fram að þessir símahrekkir séu ekki í beinni útsendingu heldur teknir upp.

Miklar umræður sköpuðust á netinu um það hvort það hefði verið rétt af útvarpsstöðinni FM 957 að útvarpa símahrekk í gærmorgun í útvarpsþættinum Svali og félagar. Hrekkurinn gekk út á það að ung stúlka fékk FM í lið með sér til að hrekkja móður sína. Hrekkurinn gekk út á að karlmaður hringdi í mömmuna og sagðist vera frá Félagsþjónustunni. Hann tilkynnti henni síðan að dóttirin ætti von á barni og hvort það væri rétt að mamman hefði bannað stúlkunni að vera á getnaðarvarnarpillunni.

Mamman sagði já en efaðist um að þetta væri rétti vettvangurinn til að ræða slík mál. Í kjölfarið kom dóttirin í símann og sagði þetta vera mömmunni að kenna, hún hefði ekki viljað leyfa sér að vera á pillunni. Og þá kom svarið sem fékk ansi marga hlustendur til að grípa andann á lofti; mamman vildi að dóttirin notaði aðrar getnaðarvarnir þar sem hún hefði verið gjörn á að fá kynsjúkdóma. Eins og gefur að skilja lauk hrekknum þarna enda hafði hann snúist rækilega í höndunum á þeim sem vildi hrekkja.

Svali segist ekki alveg skilja þessi hörðu viðbrögð við þessum hrekk. Mun grófari hrekkjum hafi verið útvarpað í þættinum. „Sjálfum fannst mér hann aðallega vandræðalegur, ég sökk alveg ofan í sætið."- fgg

Hægt er að hlusta þátt Svala og félaga hér á útvarpssíðu Vísis. Hann byrjar þegar um 69 mínútur eru liðnar af þættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.