Þessi stelpa er að meika það - myndir Ellý Ármanns skrifar 26. júní 2010 11:30 „Á fimmtudaginn kom hún síðan fram á Tie and Tiara ballinu hans Elton John síðasta og söng með honum í jakkanum mínum sem var alveg ótrúlega frábært. Ég á ennþá erfitt með að trúa þessu," sagði Vera. „
Ég er búin að vera að læra fatahönnun hjá Istituto Marangoni í London í þrjú ár," segir Vera Þórðardóttir sem útskrifaðist síðasta þriðjudag, 22. júní, sem fatahönnuður. Við höfðum samband við Veru í morgun þegar við fréttum að Lady GaGa klæddist jakka eftir hana á tónleikum síðasta fimmtudag.„Núna er ég í stafsþjálfun hjá William Tempast en byrja síðan að vinna hjá Walsh í næsta mánuði. Áður hef ég verið í starfsþjálfun hjá meðal annars Hussein Chalayan, PPQ og Poltock & Walsh," segir hún.„Ég veit ekki alveg hvort að ég er að meika það eða ekki," segir Vera og skellihlær. Hún býr í London.Lady GaGa klæddist jakka eftir þig í fyrradag þegar hún söng ásamt Elton John. Hvernig kom það til? „Ég í rauninni vissi ekki mikið um þetta fyrr en aðdáendaklúbburinn hennar hafði samband við mig og bað um uppýsingar um jakkann," svarar Vera og heldur áfram: „Fólkið hennar hafði upprunalega samband við skólann minn eftir að hafa séð myndir frá lokasýningunni okkar."„Fólkið hennar (Lady GaGa) hafði upprunalega samband við skólann minn eftir að hafa séð myndir frá lokasýningunni okkar."„Skólinn hafði síðan samband við mig en það var voða leynd yfir þessu öllu saman en þau sögðu að það gæti verið að Lady Gaga myndi vera í fötunum mínum við eitthvað tækifæri."„Á fimmtudaginn kom hún síðan fram á Tie and Tiara ballinu hans Elton John síðasta og söng með honum í jakkanum mínum sem var alveg ótrúlega frábært. Ég á ennþá erfitt með að trúa þessu."Ertu að meika það Vera? „Ég veit ekki alveg hvort að ég er að meika það eða ekki," svarar Vera og skellihlær. „Ég er búin að vinna mikið og fá mikið af tækifærum hérna úti sem ég er mjög þakklát fyrir. Ég vann verðlaun í hönnunarkeppni á Vauxhall fashion scout og þá byrjaði boltinn eiginlega að rúlla." „Eftir það var ég valin til að opna lokasýninguna í skólanum með jakkanum sem Lady Gaga klæddist og það var mikill heiður og hefur örugglega hjálpað til. Þannig að það eru rosalega margir litlir þættir sem spila inní en það eina sem skiptir máli er að vinna staðfast að markmiðunum sínum og láta það ekki á sig fá ef manni tekst ekki alltaf allt sem manni langar að gera. Það er enginn fullkomin og maður reynir bara aftur og lærir af því." „Ég hef líka lært alveg rosalega mikið af því að taka starfsþjálfun hjá mismunandi fyrirtækjum og læra af fólkinu í bransanum," segir Vera áður en við kveðjum hana og óskum henni velfarnaðar í framtíiðnni. -elly@365.is
Mest lesið „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lífið Þessi sigruðu Met Gala Tíska og hönnun Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Menning Lively og Baldoni náðu sáttum Lífið „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ Lífið Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Lífið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Met Gala-bölvunin alræmda Tíska og hönnun Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Lífið Fleiri fréttir Glæsileg hæð í einu fallegasta húsi Hlíðanna Oddvitaáskorunin: Mistök að kenna hundinum á klukku „Lítill verkalýðsprins synti í heiminn“ „Maður hefur verið í feluleik að lifa tvöföldu lífi“ Lively og Baldoni náðu sáttum Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Oddvitaáskorunin: Ófeiminn að taka undir þegar Frelsið tekur að óma Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Sjá meira