Svaraði í símann fyrir leikhúsgest 22. apríl 2010 06:00 Guðjón Þorsteinn Pálmarsson greip til þess ráðs að svara í síma fyrir leikhúsgest sem hafði truflað sýninguna með sælgætisbréfaskrjáfi. „
Ég held að ég hafi ekki brotið neinar reglur sýningarinnar en ég komst ansi nálægt því,“ segir Guðjón Þorsteinn Pálmarsson sem leikur í sýningu Borgarleikhússins, Eilífri óhamingju, en hann svaraði í símann fyrir leikhúsgest sem kom á sýninguna í vikunni. Guðjón viðurkennir að hann hafi aðeins misst stjórn á sjálfum sér. Forsagan er sú að á umræddri sýningu var gestur sem hafði með sér töluvert magn af sælgæti inn í salinn. Gesturinn virtist hafa einstakt lag á að velja sér sætindi með nógu háværum umbúðum og lét sér í léttu rúmi liggja að hann var á leiksýningu. Þegar töluvert var liðið á sýninguna og Sara Dögg Ásgeirsdóttir, meðleikkona Guðjóns í verkinu, var að flytja hjartnæma og sorglega einræðu um barnamissi dró umræddur gestur upp feiknastórt súkkulaði og gæddi sér á því með slíkum látum að það fór ekki fram hjá neinum. Guðjón segist þá hafa endanlega misst stjórn á sér. „Ég tók með mér plastglas sem lá á sviðinu, gekk upp að gestinum og lét hann hafa það með þeim orðum að þetta glas væri miklu betra, það gæfi nefnilega frá sér meiri hávaða,“ útskýrir Guðjón. Til að bæta gráu ofan á svart þá hringdi sími umrædds gest á meðan Guðjón stóð yfir honum. Og þá var ekkert um annað að ræða fyrir Guðjón en að svara í símann. „Þetta reddaðist alveg fyrir horn en ég held að ég eigi aldrei eftir að lenda í öðru eins. Við höfum alveg stoppað sýningar út af gsm-símum en þetta var sennilega það rosalegasta.“ - fgg
Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Furðubandið sem tryllti netið Lífið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Tíska og hönnun Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Fleiri fréttir Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Sjá meira