Fetaði í fótspor stóru systur 22. júní 2010 06:00 Elín Sólborg Eyjólfsdóttir var valin Sumarstúlka Vestmannaeyja árið 2010. Systir hennar vann sama titil árið 1999.Mynd/óskar pétur friðriksson
Sumarstúlka Vestmannaeyja var valin í Höllinni í Eyjum síðasta laugardagskvöld og var sigurvegari keppninnar hin átján ára gamla Elín Sólborg Eyjólfsdóttir. Þetta er í tuttugasta og fjórða skipti sem keppnin er haldin, en hún fer fram hvert sumar. Elín Sólborg stundar nám á náttúrufræðibraut við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum auk þess sem hún er formaður nemendaráðs skólans. Hún segist hafa ákveðið að taka þátt í keppninni þar sem systir hennar var kosin Sumarstúlkan árið 1999. „Ég var beðin um að taka þátt og ég ákvað að slá til því systir mín vann árið 1999 og mér fannst skemmtileg tilhugsun að feta í fótspor hennar. Margar vinkonur mínar tóku einnig þátt í keppninni í ár þannig að það var aldrei neinn mórall á milli okkar sem kepptu,“ útskýrir Elín. Hún segir keppnina ekki vera hefðbundna fegurðarsamkeppni heldur sé Sumarstúlkan valin út frá persónuleika og framkomu. „Valið er meira byggt á hvernig stúlkurnar bera sig og persónuleika þeirra. Þetta er heldur ekki forval fyrir Ungfrú Ísland og ég efast stórlega um að leið mín liggi í þá keppni. Sigurinn kom þó skemmtilega á óvart því mér fannst hæpið að við systurnar myndum báðar vinna þennan titil,“ segir hún og hlær. Aðspurð segist Elín að sjálfsögðu ætla að taka þátt í þjóðhátíð í ár eins og sönnum Eyjamanni sæmir og bætir við að fjölskylda hennar hafi aldrei misst af þjóðhátíð í öll þau ár sem hún hefur verið haldin. Hvað framtíðina varðar segist Elín hafa mikinn áhuga á að stunda nám í læknisfræði. „Ég hef mikinn áhuga á öllu náttúrufræði tengdu og langar að flytja til Kaupmannahafnar eftir stúdentsprófið og sjá hvað hún hefur upp á að bjóða. Það er svo aldrei að vita nema maður fari í nám þangað.“ - sm
Mest lesið Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Gerða og glæsilegar gellur á Edition Lífið „Nútíminn er trunta“ Lífið „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Lífið Rithöfundurinn Paul Auster er látinn Lífið Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti Lífið „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Lífið Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Lífið Fleiri fréttir „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Baldurs og Felix-fáni falur Menningarunnendur nutu veðurblíðunnar í miðborginni Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Allt það besta úr þáttaröðinni Öll þessi ár Fyrstu kaupendur hafi þessi atriði í huga Rikki G svaraði kallinu og lét draum Ólafs Jóhanns rætast Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Ósáttir karlar flautuðu á Fríðu Sjá meira