Fagaðilar gagnrýna tískuviku 14. ágúst 2010 08:00 Halla Helgadóttir hjá Hönnunarmiðstöðinni og Félag fatahönnuða eru sammála um að ekki hafi verið faglega staðið að Iceland Fashion Week hingað til. Fréttablaðið/valli „
Það er vafasamt að hægt sé að halda viðburð með þessu nafni án samstarfs við Fatahönnunarfélag Íslands og starfandi fagfólk í greininni,“ segir Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvarinnar, en hún er að vísa í Iceland Fashion Week sem verður haldin í byrjun næsta mánaðar. Mikið fár var vegna viðburðarins í fyrra vegna ósættis milli þátttakenda og stjórnanda hátíðarinnar, Kolbrúnar Aðalsteinsdóttur. Erlendir fjölmiðlamenn fóru ófögrum orðum um tískuvikuna og sagði blaðamaðurinn Cator Sparkz í samtali við Fréttablaðið að hátíðin hefði verið hreint út sagt hræðileg. Halla vill meina að hátíðin hafi verið kynnt á fölskum forsendum sem íslensk tískuvika og stórviðburður á sviði fatahönnunar á Íslandi. „Ég hef áhyggjur af því að þessi hátíð gefi alranga mynd af því sem er að gerast í íslenskri fatahönnun í dag.“ Halla segist hafa fengið mörg símtöl undanfarið þar sem fatahönnuðir hafa áhyggjur af Iceland Fashion Week. „Þessi viðburður er ekki haldinn í neinu samstarfi við okkur. Eftir neikvæða umfjöllun á erlendri grund eftir síðustu hátíð finnst mér mjög mikilvægt að fólk átti sig á því að þessi viðburður hefur í raun ekkert með íslenska tískuviku að gera,“ segir Halla og bætir við að það sé samdóma álit Hönnunarmiðstöðvarinnar og Félags fatahönnuða að ekki hafi verið faglega staðið að Iceland Fashion Week hingað til. „Þetta mál snýst um ímynd og fagmennsku heillar atvinnugreinar sem er ung og viðkvæm en veltir nú þegar milljörðum árlega og er í örum vexti hér á Íslandi. Því miður rugla menn alltof oft saman „amatörisma“ og alvöru hönnun sem gefur mjög ranga mynd af þeim uppgangi sem er í hönnun á Íslandi í dag,“ segir Halla að lokum. - áp
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira