Örstutt jól keppir á þekktri nördahátíð í Texas-fylki 7. september 2010 17:45 Ómar er einn af handritshöfum stuttmyndarinnar Örstutt jól sem verður sýnd á Fantastic Fest í Texas.fréttablaðið/gva
Stuttmyndin Örstutt jól í leikstjórn Árna „Súra" Jónssonar verður sýnd á kvikmyndahátíðinni Fantastic Fest í Austin í Texas í lok mánaðarins. „Þetta er ákveðinn bónus að fá myndina þarna inn. Ég sendi hana inn eiginlega upp á djókið," segir Ómar Örn Hauksson, einn af handritshöfundunum. Hann viðurkennir að boðið á hátíðina hafi komið sér á óvart bæði vegna þess að Örstutt jól er fjögurra ára gömul og að hún hefur hvergi verið sýnd erlendis. Ómar hefur tvívegis farið á Fantastic Fest, sem er nokkurs konar nördahátíð þar sem fantasíu- og hryllingsmyndir eru í hávegum hafðar. Hann hefur bæði farið sem aðdáandi og sem blaðamaður kvikmyndasíðunnar Twitchfilm.net en núna rætist gamall draumur með því að eiga sjálfur mynd á hátíðinni. „Fantastic Fest er búin að festa sig í sessi sem hátíð sem vert er að fara á. Þetta er sú hátíð sem mig langar mest að komast inn á með eitthvað," segir hann. „Þarna gefst manni kannski tækifæri til að koma stóru útgáfunni á framfæri því planið var að gera þessa mynd í fullri lengd. En við sjáum bara til," segir hann um Örstutt jól. Mynd úr atriði í stuttmyndinni blóðugu, Örstutt jól. Mikið verður um að vera á Fantastic Fest í ár. Frumsýningarmyndin verður Let Me In, endurgerð sænsku vampírumyndarinnar Låt den rätte komma in, og einnig verður Buried, nýjasta mynd Ryans Reynolds, frumsýnd og fólk verður grafið lifandi í kynningarskyni. Heiðursgestur verður Woo-ping Yuen, slagsmálahöfundur mynda á borð við The Matrix, Kill Bill 2 og Crouching Tiger, Hidden Dragon. Á síðasta ári voru leikararnir Sam Rockwell, Woody Harrelson og Alexander Skarsgård úr þáttunum True Blood á meðal gesta hátíðarinnar og árið áður mætti þangað Bill Murray. Ómar verður því væntanlega í góðum félagsskap í Texas í lok september. Örstutt jól er blóðug, tíu mínútna mynd sem segir frá hópi afvegaleidds ungs fólks sem heldur langt upp í sveit til að losa sig frá öllum sínum djöflum. Með helstu hlutverk fara Laufey Elíasdóttir, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson og Ari Matthíasson. -fb
Mest lesið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið Margir að þykjast: „Þessi feluleikur að þykjast vera kúl er svo algengur“ Áskorun GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Lífið „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Lífið „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Plokkað af krafti með forsetamaka Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Fleiri fréttir GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Glæsilegar í Gamla Bíói Stjörnur fjármálabransans komu saman Eiginkonan hélt að Vígþór væri að grínast í fyrstu spurningu Hátindur Netflix réttur staður fyrir Baltasar Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Sjá meira