Skrifar bók um ævi og baráttu Rafns Jónssonar 10. ágúst 2010 10:00 Jón Ólafsson vinnur að ævisögu um Rafn Jónsson trommara sem lést árið 2004 eftir að hafa barist við veikindi um árabil. Hann var meðal annars í hljómsveitunum Grafík, Bítlavinafélaginu og Sálinni hans Jóns míns. Þessi mynd var tekin af trommaranum í byrun tíunda áratugarins þegar hann var nýbúinn að greinast með hreyfitaugahrörnunarsjúkdóminn, MND. Fréttablaðið/bg „
Ég er búinn að vera með þessa hugmynd í kollinum mjög lengi og það má eiginlega segja að ég sé í startholunum,“ segir Jón Ólafsson tónlistarmaður en hann er með ævisögu trommarans Rafns Jónssonar í bígerð. „Ég er búinn að fá grænt ljós á verkefnið hjá ættingjum hans og er því að bíða eftir að það hægist um hjá mér svo ég geti byrjað í heimildavinnunni,“ segir Jón en hann er þessa dagana að vinna að söngleiknum um Buddy Holly. „Ég sé fyrir mér að þetta verður svona falleg og skemmtileg hetjusaga um frábæran karakter sem setti stóran svip á íslenska tónlistarsögu.“ Rafn Jónsson eða Rabbi eins og hann var gjarnan kallaður lést þann 27. júní árið 2004 eftir langvinna baráttu við sjúkdóminn MND. Hann gerði meðal annars garðinn frægann í hljómsveitum eins og Grafík, Bítlavinafélaginu og Sálinni hans Jóns míns ásamt því að vera iðinn við trommuleik með hinum ýmsu tónlistarmönnum. Hann lagði kjuðana á hilluna árið 1993. „Við Rabbi vorum alltaf góðir félagar og eftir að hann veiktist var ég hluti af hans stuðningsteymi sem létti undir með fjölskyldunni,“ segir Jón en þeir Rafn spiluðu saman í Bítlavinafélaginu. „Við vorum góðir félagar og ég þekkti hann vel fyrir veikindinn. Svo fylgdist ég vel með honum í veikindunum og alveg til endaloka,“ segir Jón en á meðan á veikindunum stóð hugsaði hann alltaf að einhver yrði að skrifa sögu Rafns. „Þá ætlaði ég í rauninni ekki að vera rithöfundurinn en núna er ég tilbúin í það og finnst það í rauninni bara sjálfsagt mál,“ segir Jón en hann hefur áður skrifað ævisögu íslensk tónlistarmanns, bókina Söknuður ævisögu Vilhjálms Vilhjálmssonar sem kom út í fyrra. „Það er margt mjög áhugavert sem gerðist í lífinu hans Rabba. Tengingin við Vestfirði er mikilvæg en mikið af íslensku poppi og rokki er einmitt ættað þaðan,“ segir Jón en Rafn fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð og var hann stór partur af tónlistarlífinu fyrir vestan á sínum tíma. Jón ætlar einnig að fara ýtarlega yfir hvernig sjúkdómurinn breytti lífi trommarans og hvernig Rafn barðist hetjulega gegn honum. „Lífið hans Rabba tók náttúrulega algjöra u-beygju þegar hann greindist með MND en mjög fáir vissu eitthvað um sjúkdóminn þá,“ segir Jón en MND er eins konar hreyfitaugahrörnunar sjúkdómur og ekki er almennilega vitað hvað veldur því að fólk greinst með sjúkdóminn. Rafn var meðal þeirra sem stofnuðu MND félagið, sem er fyrir þá sem greinast með þennan erfiða sjúkdóm. „Það hafa allir gott af því að lesa um ævi og baráttu Rabba. Ekki bara útaf tónlistinni heldur líka til að minna sig á hvað maður sjálfur hefur það gott,“ segir Jón að lokum. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira