Lífið

Talar um leggöngin sín til að fá athygli

Katie Price. MYNDIR/Cover Media
Katie Price. MYNDIR/Cover Media

Breska fyrirsætan Katie Price, eða Jordan, kynnti nýja bók eftir sjálfa sig sem ber heitið You Only Live Once eða Þú lifir bara einu sinni í London í gærdag.

Eins og myndirnar sýna stillti fyrirsætan sér upp í ýmsu stellingum með bókina í hönd.

Jordan virðist vinna markvisst að því að hneyksla fólk en hún segist vera með nýja aðgerð á prjónunum. Hún ætlar að láta þrengja leggöng sín. „Þegar ég er búin mun ég vera eins og nunna," segir fyrirsætan í viðtali við Sunday Magazine. „Eftir að hafa fætt þrjú börn finn ég virkilegan mun," segir hún.

Hún á börnin Harvey Daniel, með fótboltamanninum Dwight Yorke, og Junior Savva og Prinxess Tiáamii með söngvaranum Peter Andre.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.