Innlent

Góð kolmunnaveiði suður af Færeyjum

Góð kolmunnaveiði hefur verið suður af Færeyjum og hafa íslensku skipin fengið þar góðan afla. Nokkur þeirra eru á heimleið með fullfermi og nokkur eru við veiðar.

Siglingin á og af miðunum er löng, en þess er vænst að kolmunninn gangi bráðlega inn í íslensku lögsöguna. Kvótinn í ár er talsvert minni en í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×