Stýrir skóla eftir þriggja ára starf 24. júní 2010 06:15 Skólastjórafjölskylda. Meðlimir fjölskyldunnar eru spennt fyrir breytingunum. fréttablaðið/vilhelm
Jóhann og unnusta hans flytja með fjölskyldu sína til Raufarhafnar nú í sumar. Þar mun hann taka við starfi skóla- og leikskólastjóra, þó nokkuð undir meðalaldri þeirra sem taka við stöðu sem þessari. „Þetta leggst bara mjög vel í okkur! Ég skiptist á að vera ótrúlega spenntur og ótrúlega stressaður. En ég held þetta verði óskaplega gaman hjá okkur“ segir Jóhann Skagfjörð. Jóhann flytur ásamt unnustu sinni, Bryndísi Evu Ásmundsdóttur, og börnunum þeirra þremur, sem eru níu, sex og eins árs, til Raufarhafnar um miðjan júlí. Jóhann, sem aðeins er 29 ára gamall, mun þar taka við stöðu skóla- og leikskólastjóra, þar sem báðar stöður heyra undir sama starfssvið. Bryndís mun vera honum til aðstoðar við skólann þar sem hún ætlar að kenna unglingastiginu. „Okkur langaði að prófa að búa úti á landi og losna við höfuðborgarstressið,“ segir Jóhann. Þegar þetta starf var auglýst opnaðist glugginn fyrir parið. „Börnunum líst líka mjög vel á þetta og sáu strax jákvæðu hliðina við að þurfa ekkert að óttast það að fara til skólastjóra,“ segir Jóhann. Jóhann og Bryndís útskrifuðust saman úr Kennaraháskólanum vorið 2007. Hefur hann því einungis kennt í um þrjú ár. Um níu prósent skólastjóra á landinu eru yngri en fjörutíu ára og er algengast að skólastjórar séu á bilinu 50-59 ára. Því er augljóst að hann er vel undir meðalaldri þeirra sem taka að sér skólastjórastöður. - ls
Mest lesið Carmina Burana sem maður vill helst gleyma – hvað fór úrskeiðis í Hörpu? Gagnrýni Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Lífið Felix kveður Eurovision Lífið Ótrúlegustu atvik geta veitt innblástur Lífið 50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“ Áskorun Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Lífið Ísland fékk stig frá þessum löndum Lífið Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Lífið Skúli bauð Grímu að fara frá sér í kjölfar falls WOW air Lífið Fleiri fréttir Ótrúlegustu atvik geta veitt innblástur Geggjaðar gellur í gæsun Grímu Thorarensen Felix kveður Eurovision Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Krakkatían: Eurovision, jarðskjálftar og dvergar Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Sjá meira