Lífið

Basterds á möguleika

quentin tarantino Tarantino telur að Inglorious Basterds geti vel komið á óvart á Óskarsverðlaunahátíðinni.
quentin tarantino Tarantino telur að Inglorious Basterds geti vel komið á óvart á Óskarsverðlaunahátíðinni.

Leikstjórinn Quentin Tarantino vill koma á óvart á Óskarsverðlaunahátíðinni um næstu helgi og hrifsa til sín helstu verðlaunin fyrir mynd sína Inglorious Basterds.

„Það væri yndislegt," segir hann. „Við eigum alveg möguleika, það er engin spurning. Ég held að hver sem er gæti unnið."

Avatar og The Hurt Locker hefur verið spáð mestu sigurgöngunni á Óskarnum, enda fengu þær hvor um sig níu tilnefningar. Basterds er aftur á móti skammt undan með átta.

Myndin hefur þegar unnið til fjölda verðlauna, þar á meðal sem sú besta á Screen Actors Guild-hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.