Ólafur F. skrifar ævisögu sína 1. júní 2010 05:00 Ólafur F. Magnússon hefur upplifað og séð margt á sínum ferli sem borgarfulltrúi. „
Það er siðferðisleg skylda mín að segja mína sögu. Hvort það verður á þessu ári eða því næsta, í bókaformi eða á einhvern annan hátt verður bara að koma í ljós. Ég á allavega mikið af heimildum í mínum fórum sem hafa ekki áður komið fram," segir Ólafur F. Magnússon, læknir og fráfarandi borgarfulltrúi. Ólafur leiddi lista H-framboðs í borgarstjórnarkosningunum á laugardaginn en kom ekki manni að. Þar með lauk 19 ára setu hans í borgarstjórn. Ferill Ólafs hefur ekki alltaf verið dans á rósum og það hefur oft gustað um hann. Ólafur viðurkennir að það eigi eflaust eftir að hrikta í einhverjum stoðum nú þegar ljóst er að hann ætli að miðla af reynslu sinni af pólitíkinni. Hann var um tíma borgarstjóri í Reykjavík, hann klauf sig frá Sjálfstæðisflokknum og Frjálslynda flokknum og því ljóst að af nægu er að taka. Einhverjir höfðu áhyggjur af því hvernig Ólafur myndi taka kosningaúrslitunum ef þau færu illa enda segist hann sjálfur vera viðkvæm og tilfinningarík persóna. „Ég er eiginlega undrandi á því hversu rólegur ég er. En það er örugglega vegna þess að ég er meira en stoltur af því sem ég hef áorkað á mínum ferli og stend í dag eftir þessa reynslu svo miklu sterkari og heilsteyptari einstaklingur." Ólafur segist ætla að nýta tíma sinn í að rækta samband sitt við fjölskyldu sína sem hafi mátt þola mikið álag, starf sitt sem læknir og njóta meiri samvista við landið sitt sem hann elski svo mikið. - fgg
Mest lesið Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Lífið Bók skilað eftir 56 ára útlán Lífið Hugmyndir fyrir mæðradaginn Lífið Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Lífið Stjörnufans í sumarselskap Lífið Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Lífið Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Lífið Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Lífið Fleiri fréttir Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Söngvakeppnin og stríðsrekstur Ísraels: „Ég er stolt af landinu mínu“ Arnór Ingvi og Andrea skinu skært í sænsku konungshöllinni Sjáðu þrjátíu sekúndur af atriði VÆB í Eurovision VÆB opnar verslun í Kringlunni Reyndi við þrjár milljónir Ný heimildarmynd Attenborough sýnir eyðileggingu í höfum jarðar Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð Logi og Hallveig keyptu hús í 101 Jói Fel ástfanginn, trúlofaður og fluttur í Hveragerði Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber Fleiri Eurovision-farar vilja Ísrael úr keppni Typpi í einu gati, tæki í öðru Ný stikla úr GTA VI Sjá meira