Hæðir og lægðir Zac og Vanessu 15. desember 2010 08:00 Nektarmyndir af Vanessu láku tvisvar á netið og vilja einhverjir meina að hún standi sjálf á bak við lekann.
Zac Efron og Vanessa Hudgens eru hætt saman eftir tæplega fimm ára samband. Hinn 23 ára gamli Zac og hin 22 ára gamla Vanessa felldu hugi saman við tökur á kvikmyndinni High School Musical fyrir fimm árum, en nú skilja leiðir. Þær dapurlegu fréttir bárust frá Hollywood að stjörnurnar Zac Efron og Vanessa Hudgens séu hætt saman eftir tæplega fimm ára samband. Greint var frá þessu á þriðjudaginn en ástæða slitanna ku vera sú að þau hafa þurft að verja full miklum tíma aðskilin vegna vinnunnar og segja vinir þeirra að þau vilji njóta þess að vera á lausu. Zac og Vanessa kynntust við tökur á Disney kvikmyndinni High School Musical, þar sem þau léku ástfangna unglingaparið Troy og Gabriellu, en það leið ekki á löngu þar til ástin á milli þeirra kviknaði í alvöru. Næstu fimm árin áttu eftir að verða afar athyglisverð. Tvær aðrar High School Musical kvikmyndir voru gerðar með þeim Zac og Vanessu í aðalhlutverkum, en stuttu eftir að mynd númer tvö kom út tókst Vanessu að koma sér í heimspressuna þegar nektarmyndir af henni láku á netið. Vanessa var miður sín og útskýrði að myndirnar hefðu eingöngu átt að vera handa Zac, en hún var einungis 17 ára þegar þær voru teknar. Þrátt fyrir hneykslið, stóð Disney samsteypan með stjörnunni sinni og Vanessa hélt hlutverki sínu sem Gabriella og samband hennar við Zac raskaðist ekki. Það liðu aðeins tvö ár þar til nektarmynda skandallinn endurtók sig, en árið 2009 birtust fleiri myndir af Vanessu sem einnig voru teknar árið 2007. Þá fóru af stað sögur þess efnis að Vanessa stæði sjálf á bak við lekann en ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum. Zac Efron virðist hafa sloppið við nektarmyndir af sér en miklar vangaveltur hafa þó verið um kynhneigð hans og vilja fjölmargir meina að hann sé samkynhneigður. Efron hefur hins vegar blásið á allar þær kjaftasögur. Vinir Zacs og Vanessu eru handvissir um að þau muni taka saman á ný þar sem þau eiga víst að vera bestu vinir þrátt fyrir sambandsslitin. Við getum ekki annað en beðið og vonað það besta. kristjana@frettabladid.is
Mest lesið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Bylgjan í beinni frá Götubitahátíðinni Lífið samstarf Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fleiri fréttir Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Sjá meira