Læðurnar sækja í Jóhann Pál 15. desember 2010 07:00 Jóhann Páll með læðuna sem Randver virðist líta hornauga. Jóhann leitar nú að eiganda hennar. Fréttablaðið/Stefán „
Ég hélt auðvitað að þetta væri vegna kvenhylli minnar," segir Jóhann Páll Valdimarsson, bókaútgefandi hjá Forlaginu. Jóhann er annálaður kattamaður, kettirnir hans Breki og Randver eru í lykilstöðum í fyrirtækinu, Breki er til að mynda endurskoðandi en Jóhann tekur skýrt fram að hann hafi aldrei stigið loppu inn fyrir dyr Pricewater House Coopers. Kattaástin virðist hafa kvisast út meðal læða á höfuðborgarsvæðinu því tvær slíkar hafa, með skömmu millibili, gert sig heimakomnar í húsakynnum Forlagsins við Bræðraborgarstíg. „Við höfðum mikið fyrir því að koma fyrri læðunni til eiganda síns og auglýstum meðal annars á Barnalandsvefnum. Einn starfsmaður hjá mér fór alltaf með hana heim til sín og það var grátur og gnístran tanna þegar eigandinn kom og sótti kisuna." Og nú hyggst Jóhann bregðast skjótt við og auglýsir hér með eftir eiganda læðunnar á myndinni til að koma í veg fyrir að slík tryggðasambönd, milli starfsmanns og kattar, endurtaki sig. Læðan er þó í góðu yfirlæti hjá Jóhanni og Guðrúnu konu hans, hefur farið heim með forleggjaranum í hádeginu og kúrt hjá honum. Randver og Breki hafa að sögn Jóhanns tekið læðunni ágætlega þótt þeir séu báðir tveir frekir á athygli og bítist um hana daglega. Jóhann segir kattaáhugann sinn arfgengan, faðir hans hafi haft mikið dálæti á köttum. „Ég hef velt þessu fyrir mér, hvað ég á auðvelt með að sýna köttum og börnum ótakmarkaða hlýju. Ætli ég vilji ekki vernda það sem lífið hefur ekki náð að spilla."- fgg
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira