Margeir sjarmerar Svíana 7. júlí 2010 05:00 Margeir Ingólfsson ferðast reglulega til Svíþjóðar þar sem hann er á samning hjá einum af stærsta skemmtistað Stokkhólms.
Plötusnúðurinn Margeir hefur komið reglulega fram á næruklúbbnum Berns Salonen undanfarið. Klúbburinn er vel þekktur í sænsku skemmtanalífi og þar sjást sænsku konungsbörnin gjarnan skemmta sér. „Ég hef verið að spila þarna reglulega síðustu tvö til þrjú ár,“ segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson aðspurður hvað hann sé að gera á einum af frægustu næturklúbbum Stokkhólms, Berns Salongen. Fréttablaðið rakst á miklar stemningsmyndir sem voru teknar á meðan Margeir var að spila og virtust Svíarnir skemmta sér vel. Næturklúbburinn er vel þekktur í sænsku skemmtanalífi og þangað venja komur sínar helstu stjörnur Svía. Sænsku konungsbörnin sjást gjarnan á þessu stað þegar þau kíkja út á lífið. Margeir gerði samning við eigendur staðarins fyrr á þessu ári um að koma reglulega og spila. Staðurinn gefur sig út fyrir að vera með rjómann í plötusnúðageiranum og Margeir því í góðum hópi. „Ég flýg út á 6-8 vikna fresti og spila. Þetta er rosalega flottur staður sem tekur um 2.000 manns og oftast mikið stuð,“ segir Margeir nýkominn heim eftir vel heppnaða helgi í Stokkhólmi. „Fyrst þegar ég byrjaði að spila í Svíþjóð fannst mér Svíarnir frekar vera úti á lífinu til að pósa og líta vel út en að skemmta sér og dansa. Nú er ég búinn að finna út hvernig á koma þeim í stuð og það var allt brjálað um helgina. Fólk dansaði uppi á borðum með hendur upp í loft.“ Sænsku eigendurnir hafa hrifist svo af töktum Margeirs bak við DJ-borðið að þeir hafa nú boðið honum að koma oftar út í mánuði en hann er að íhuga boðið. „Það er nú bara spurning hvort maður hafi tíma aflögu enda er ég í annarri vinnu og með fjölskyldu,“ segir Margeir sem hefur þó heillast af Stokkhólmi. Berns Salongen er bæði hótel, veitingastaður og skemmtistaður. Þar eru haldnir flestir stórviðburðir í sænsku skemmtanalífi, til dæmis sænska Grammy-verðlaunahátíðin. Einnig hafa stórstjörnur á borð við Missy Elliot og Jay Z haldið stór partí á Berns eftir sína tónleika í Stokkhólmi. Berns er einnig bakhjarl sænsku tískuvikunnar sem haldin er tvisvar á ári. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira